Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. mars 2026 16:57 Þráinn Bj. Farestveit sagði sögu sína í fyrsta skipti opinberlega í morgun. Vísir/Vilhelm Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ, tjáði sig í fyrsta skipti um ofbeldi sem hann varð fyrir á unga aldri á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi í morgun. Hann lýsti mikilvægi þess að koma til móts við börn sem eiga í erfiðleikum. „
Ég elst upp við mjög gott fjölskyldulíf, það var engin óregla eða slíkt en ég verð fyrir því að í nærumhverfinu eru konur sem að beita mig kynferðislegu ofbeldi,“ sagði Þráinn við gesti fundarins, sem var í beinu streymi á Vísi. „Í ljósi þess fór ég sem barn að sækja mér stuðning hjá eldri félögum og þá upphefst annars konar ofbeldi sem endar með skelfingu og ég enda á sjúkrahúsi mjög illa farinn líkamlega. Eftir þetta breyttist ég og fólk fer að spyrja hvað hafi orðið um dregninn sem var áður.“ Hann segist hafa átt í miklum erfiðleikum í skólanum, eitthvað sem margir skjólstæðingar hans í dag lýsa einnig. Áföll á unga aldri leiða oft til þess að fólk, sér í lagi drengir, eigi afskaplega erfitt með að fóta sig í skóla. Aðspurður segist Þráinn hafa þurft á eins konar áheyrn að halda á þessum tímapunkti og segir að á hans yngri árum hafi samfélagið verið þannig uppbyggt að lítið sem ekkert samtal átti sér stað um erfið málefni. Að lokum var hann sendur á upptökuheimili fyrir utan höfuðborgina í von um að það myndi hafa jákvæð áhrif á hann. „Þarna kem ég og er í úrræði þar sem er þegar annar einstaklingur vistaður sem er mér miklu eldri. Eins og ég man hann var þetta eins og í Mús og menn þar sem maðurinn var þykkur og feitur. Hann bjó á loftinu með mér, það var lítill gangur á milli og þessi maður var að koma seint inn í herbergið og bera sig og fitla við sig. Hann gerði mér ekki neitt en í ljósi þess svaf ég ekkert þarna í heilt ár,“ segir Þráinn. Sneri við blaðinu eftir rúman áratug Þráinn segist einnig hafa átt erfitt í skólanum sem hann var í á þessum tíma vegna ofbeldisins. Aðrir krakkar forðuðust hann og settist hann alltaf aftast í skólastofuna. Eftir ársdvöl sneri hann aftur en gerðist að hans sögn „algjör stjórnleysingi“. Við tók um áratugur af erfiðleikum og segist Þráinn hafa verið sífellt í nýjum meðferðum eða á stofnunum. „Ég náði ekki fótunum undir mig.“ „1987 fer ég inn í vímuefnameðferð hjá SÁÁ og við tekur annað tímabil. Frá því ég hef ég gengið þennan veg í trú um það að aðrir sem fóru þennan veg eigi von um að fá nýja fortíð, ekki það sem áður var,“ segir Þráinn. „Ég skil vel, ef við skoðum ofbeldisbrot, að maður nær ekki endurheimt í hvað maður gerir og viðheldur tilfinningum eins og reiði, sorg og situr eftir með sig skemmdan.“ Í dag er Þráinn menntaður afbrotafræðingur og nýtir reynsluna sína til að hjálpa öðrum í störfum sínum hjá Vernd fangahálp og SÁÁ. Hann ítrekar hvað það sé mikilvægt að hlusta á börnin þegar þau biðja um hjálp. Hann hefur barist í þágu þeirra sem vistaðir voru á hinum ýmsu heimilum á árum áður, þar á meðal á Bakkakoti sem hefur verið töluvert til umfjöllunar nýverið. „Ég bendi fólki á að hlusta á börnin, það sem gerist á einhverjum tímapunkti er að börnin rétta fram höndina og biðja um svörun. Það er oft þannig að það er bara einn gluggi og þá er eins gott að grípa hann.“
Lögreglan Ofbeldi gegn börnum Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Minkum sleppt út í Mosfellsdal Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Minkum sleppt út í Mosfellsdal „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira