Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS VÍS 5. mars 2026 10:28 Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS fjallar um Forvarnaráðstefnu VÍS. Forvarnaráðstefna VÍS hefur verið haldin árlega frá árinu 2010 og hefur fest sig í sessi sem fjölsóttasti vettvangur landsins fyrir umræðu um forvarnir og öryggi í íslensku samfélagi. Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á mikilvægi markvissra forvarna, miðla þekkingu og hvetja fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að taka skref í átt að öruggara samfélagi. Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS fjallar hér um ráðstefnuna.
Yfirskrift ráðstefnunnar í ár er Öryggi á okkar vegum. Umferðin snertir alla þætti samfélagsins og varðar jafnt fyrirtæki sem einstaklinga, hvort sem um er að ræða ökumenn, farþega, hjólandi eða gangandi vegfarendur. Með ráðstefnunni er markmiðið að stuðla að fækkun slysa og tjóna með aukinni vitund, fræðslu og markvissum forvörnum. Forvarnaverðlaun VÍS Forvarnaverðlaun VÍS eru eftirsótt verðlaun á sviði forvarna hér á landi. Þau eru veitt á ráðstefnunni þeim fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr með framúrskarandi og markvissu forvarnastarfi og sýnt með skýrum hætti fram á árangur í forvörnum. Verðlaunin eru veitt í tveimur flokkum: Fyrirtæki með 100 eða fleiri starfsmenn Fyrirtæki með færri en 100 starfsmenn Með þessari skiptingu fá bæði stór og minni fyrirtæki raunhæf tækifæri til að hljóta viðurkenningu fyrir vandað og árangursríkt starf á sviði forvarna. Við val á verðlaunahöfum er horft til þess hvernig forvarnir eru samþættar daglegum rekstri, hvort markvisst sé unnið að bættu öryggi og hvort sýnilegur árangur hafi náðst. Forvarnir eru samvinnuverkefni Forvarnaráðstefna VÍS undirstrikar að forvarnir fyrirtækja eru samvinnuverkefni. Árangursríkar forvarnir byggja á víðtæku og samstilltu samstarfi hins opinbera, atvinnulífs, frjálsra félagasamtaka og almennings. Með því að skapa vettvang þar sem sérfræðingar, stjórnendur og aðrir koma saman gefst tækifæri til að miðla þekkingu og reynslu, ræða nýjar lausnir og móta sameiginlega sýn um hvernig megi efla öryggi í samfélaginu. Umferð er þema ráðstefnunnar í ár og er áminning um að á bak við tölfræði um slys og óhöpp eru líf, fjölskyldur og vinnustaðir. Með markvissu forvarnarstarfi má koma í veg fyrir mörg þessara atvika og draga úr alvarleika þeirra. Ráðstefnan er opin öllum þeim sem hafa áhuga á öryggismálum og hvetjum við öll til að skrá sig á ráðstefnuna sem verður haldin í Hörpu 12. mars kl. 12:30-15:30.
Tryggingar Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira