Segir Fabrizio Romano að skammast sín Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 08:00 Fabrizio Romano er heimsþekktur fyrir fótboltafréttir sínar. Getty/Michael Regan Fabrizio Romano, helsti skúbbari fótboltaheimsins í dag, siglir nú í ólgusjó eftir að hafa kynnt mannúðarstarf Sádi-Arabíu í kostaðri auglýsingu.
Romano er þekktur fyrir að segja fyrstur frá kaupum og sölum hjá stærstu fótboltafélögum heims en nú lítur út fyrir að hann sjálfur hafi verið keyptur. Romano hefur fengið á sig harða gagnrýni fyrir þetta kostaða myndband en nokkrir blaðamenn telja það grafa undan heilindum hans og trúverðugleika. Sérfræðingar leggja áherslu á mikilvægi þess að halda blaðamennsku aðskilinni frá viðskiptahagsmunum. „Þetta grefur undan heilindum hans og trúverðugleika sem blaðamanns. Mér finnst þetta hljóma illa,“ sagði Reidar Sollie, stjórnarmaður og fyrrverandi formaður Samtaka norskra íþróttafréttamanna til margra ára. Fabrizio Romano sló í gegn sem fótboltablaðamaður fyrir nokkrum árum. Nú er hann heimsþekktur fyrir að afhjúpa stór félagaskipti í fótbolta og hefur safnað gríðarstórum fylgjendahópi á samfélagsmiðlum. Shame on you. Journalists should stand together. https://t.co/jpf2t3C6wl— John Cross (@johncrossmirror) March 3, 2026 Í erlendum fjölmiðlum er hann reglulega kallaður „félagaskiptagúrú“ þegar hann greinir frá félagaskiptum. Á þriðjudaginn birti hann hins vegar myndband sem var óvenjulegt. Í kostaðri auglýsingu kynnti hann mannúðarstarf Sádi-Arabíu í gegnum KSRelief. Myndbandinu var deilt á miðlinum X, þar sem hann hefur yfir 27 milljónir fylgjenda. Nokkrir erlendir blaðamenn, þar á meðal John Cross hjá Daily Mirror, hafa gagnrýnt myndband Romanos. „Skammastu þín. Blaðamenn ættu að standa saman,“ skrifar Cross á X. „Svona er heimur samfélagsmiðlanna. En kannski hjálpar þetta fólki að skilja mikilvægi blaðamennsku, jafnvel þegar kemur að því að neyta einhvers jafn einfalds og félagaskiptafrétta,“ skrifar Matt Lawton hjá The Times. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið sem um ræðir. Global Humanitarian Role of Saudi Arabia @KSRelief_EN #ad pic.twitter.com/GcmHu7LEUj— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) March 3, 2026
Fótbolti Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Átta rauð spjöld í sama leiknum Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen HM-minningin: Þegar Úrúgvæ setti fjórar stjörnur á búninginn sinn HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Sjá meira