Apinn að vaxa upp úr apabangsanum Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. mars 2026 13:56 Djungelskog-apinn hefur fylgt apanum Punch hvert sem hann fer. Getty Munaðarlausi makakíapinn Punch, sem öðlaðist nýverið heimsfrægð vegna sambands við órangútanbangsa úr Ikea, er sagður byrjaður að vaxa upp úr notkun bangsans og tekinn að aðlagast betur samfélagi apa í Ichikawa-dýragarði.
Fréttaveitan AP hefur þær fréttir eftir starfsmönnum og gestum dýragarðsins í Ichikawa, sem er staðsett skammt frá Tókýó. Punch var yfirgefinn af móður sinni þegar hann fæddist í dýragarðinum í Ichikawa fyrir sjö mánuðum. Á fyrstu mánuðum ævinnar eru makakíapar háðir mæðrum sínum og öðlast styrk með því að halda í feld þeirra. Gripið var til þess ráðs að sjá apanum fyrir förunaut með því að gefa honum órangútan-tuskubangsa. Punch varð strax mjög heillaður af apabangsanum, dró hann með sér um dýragarðinn og kúrði hjá honum meðan hann svaf. Myndbönd og myndir af samlífi þeirra félaga vöktu gríðarlega athygli um heim allan. Hérlendis fann Ikea fyrir aukinni sölu á brúna órangútanbangsanum. En nú hefur orðið breyting á samvistunum, Punch er farinn að nota tuskubangsann mun minna. Nýverið sást til Punchs klifra á baki annars api, sitja með eldri öpum og knúsa sambýlisapa sína. „Það að hjálpa Punch að læra reglur apasamfélagsins og verða viðurkenndur sem gildur meðlimur er okkar mikilvægasta verkefni,“ sagði Kosuke Kano, 24 ára starfsmaður dýragarðsins, í samtali við AP. Vinsældir Punch hafa verið svo miklar að dýragarðurinn varð að herða reglur og takmarka heimsóknir við tíu mínútna lotur til að draga úr stressi apanna. Vænta má að áhuginn dofni hægt og rólega og snarminnki þegar Punch hættir að nota bangsann. „Þegar hann vex upp úr tuskudýrinu þá hvetur það hann til aukins sjálfstæðis og það er það sem við vonumst eftir,“ sagði Shigekazu Mizushina, forstjóri dýragarðsins. Punch sefur enn með bangsanum á hverri nóttu og segist Mizushina að næsta skref apans verði að sofa með hinum öpunum.
Japan Dýr Samfélagsmiðlar IKEA Grín og gaman Dýragarðar Mest lesið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Fleiri fréttir Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Sjá meira