Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. mars 2026 08:53 Frá aðgerðinni, þar sem sjúklingurinn var á Gíbraltar en skurðlæknirinn í Lundúnum. Um er að ræða fyrstu aðgerð þessarar tegundar sem framkvæmd er á Bretlandseyjum. Getty/Aaron Chown Bretinn Paul Buxton greindist nýlega með krabbamein í blöðruhálskirtli og gekkst undir skurðaðerð fyrr á árinu, þar sem blöðruhálskirtilinn var fjarlægður.
Það væri ef til vill ekki í frásögur færandi, nema vegna þess að aðgerðin fór fram á Gíbraltar, þar sem Buxton hefur verið búsettur í 40 ár, en hún var framkvæmd af skurðlækni í Lundúnum. Skurðaðgerðin hefur vakið mikla athygli og verður endurtekin á öðrum sjúklingi þann 14. mars næstkomandi, þar sem um 20 þúsund skurðlæknar munu fylgjast með í beinni útsendingu frá þingi European Association of Urology. Við stjórnvölinn verður skurðlæknirinn Prokar Dasgupta, sem einnig framkvæmdi aðgerðina á Buxton. Við aðgerðina notar Dasgupta stjórnborð Toumai Robotic System, sem framleitt er af fyrirtækinu Microport, en það notar hann til að stýra skurðróbóta sem staddur er á skurðstofunni með sjúklingnum. Þess bera að geta að skurðteymi var á staðnum til að grípa inn í og ljúka aðgerðinni á Buxton ef eitthvað færi úrskeðis en aðgerðin gekk glimmrandi vel. Það liðu aðeins 0,06 sekúndur á milli hreyfinga Dasgupta og róbótans og Buxton var klæddur og kominn á ról á góðum tíma. Flestir íbúar Gíbraltar sem þurfa á skurðaðgerð að halda neyðast til að ferðast til Lundúna eða Madríd. Dasgupta segir nýju tæknina munu geta sparað verulegan tíma og peninga. Guardian greindi frá.
Bretland England Gíbraltar Heilbrigðismál Krabbamein Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Fleiri fréttir Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sjá meira