Samstarf

Pringles Páska­egginu stolið

Nói Síríus
Búið var að skipta Pringles páskaeggi út fyrir ananas.
Búið var að skipta Pringles páskaeggi út fyrir ananas.

Óvenjulegt og óheppilegt atvik átti sér stað í vikunni þegar eitt af hinum eftirsóttu Pringles-páskaeggjum Nóa Síríus hvarf sporlaust úr lokuðum sýningarstandi sem er hluti af framstillingu í verslun til að kynna Pringles-páskaleikinn. Málið hefur vakið töluverða athygli, enda er um afar takmarkað magn að ræða og hvert egg dýrmætt.

Samkvæmt upplýsingum frá markaðsdeildinni áttu starfsmenn erfitt með að trúa sínum eigin augum þegar þeir uppgötvuðu að eggið væri horfið og búið var að koma ananas fyrir í staðin. „Við erum í sárum,“ segir Katrín Pétursdóttir, markaðsstjóri hjá Nóa Síríus. „Það er virkilega leiðinlegt að fólk geri svona. Þetta er ekki venjulegt súkkulaðistykki sem hægt er að grípa með sér, þetta er Pringles‑páskaegg, og við fengum aðeins mjög takmarkað magn.“

Brotinn sýningarkassi og skemmt Pringles páskaegg.

Anna Fríða Gísladóttir, framkvæmdastjóri markaðssviðs Nóa Síríus, tekur í sama streng og bendir á að þetta sé annað áfallið á skömmum tíma. Fyrir nokkrum vikum höfðu þau fundið brotinn sýningarkassa og skemmt Pringles páskaegg á öðrum stað. Verið er að skoða upptökur úr öryggismyndavélum hvernig eggið komst úr húsi. Engar vísbendingar liggja þó fyrir að svo stöddu og málið því enn óupplýst.

Við erum að reyna að sjá skoplegu hliðina á þessu, þar sem eggin eru greinilega mun vinsælli en við gerðum okkur grein fyrir, fólk tekur sig bókstaflega til og stelur því,“ segir Katrín ennfremur. 

„En staðan er sú að þetta er alvarlegt innan markaðsdeildarinnar þar sem við byggðum herferðina á ákveðnum birgðum. Þetta er bara smá áfall.“

Nóa Síríus biður því alla landsmenn um að láta vita ef þeir rekast á Pringles-egg á vafasömum stað. 

Um leið viljum við minna á að enn er hægt að eiga möguleika á að eignast eitt af þessum eftirsóttu eggjum. Til að taka þátt þarf að:

  1. Kaupa tvær dósir af Pringles
  2. Taka mynd af kvittuninni
  3. Skila kvittuninni inn í gegnum vefinn
  4. Fara þar með í pottinn og eiga möguleika á að vera dreginn út
  5. Vinningur: Pringles-páskaegg – aðeins 50 stk. í boði
  6. Dregið verður út 30.mars.

Markaðsdeildin segist ætla að taka þetta með yfirvegun, „smá sjokk, smá húmor, og svo höldum við áfram.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×