Er íslenskan að verða „ísl-enska“? Birgir Liljar Soltani skrifar 11. mars 2026 18:01 Hefur þú hlustað á samtal ungs fólks nýlega? Þá hefur þú líklega tekið eftir ákveðinni breytingu. Íslenskan sem þar heyrist er æ oftar gegnsýrð af enskum orðum, slangri og frösum. Stundum virðist móðurmálið jafnvel víkja til hliðar fyrir ensku í miðju samtali. Þessi þróun ætti að vekja okkur til umhugsunar. Tungumálið er ekki aðeins samskiptatæki heldur líka tæki hugsunar. Sá sem á erfitt með að setja hugsanir sínar í orð á eigin tungumáli stendur einfaldlega verr að vígi, bæði í námi, starfi og lífinu sjálfu. Á tímum samfélagsmiðla hefur daglegt líf ungs fólks breyst hratt. Flestir eyða gríðarlega stórum hluta dagsins í að „scrolla“ á forritum á borð við Instagram, TikTok, Facebook og YouTube. Þar neyta þeir gríðarlegs magns af efni í formi stuttra myndbanda, og langstærstur hluti þess efnis er á ensku. Í þessum myndböndum er gjarnan notað bandarískt slangur og ýmsir frasar sem margir fullorðnir menn skilja vart. Þetta væri ef til vill ekki mikið áhyggjuefni ef áhrifin enduðu þar. En svo virðist ekki vera. Áhrifin sjást nú æ oftar í máli ungs fólks. Það er orðið nánast undantekning að heyra samtal þar sem íslenskan stendur ein og óblönduð. Ensk orð, slangur og frasar blandast inn í íslenskuna svo reglulega að stundum virðist móðurmálið sjálft verða að aukaatriði í samtalinu. Í sumum tilfellum er þetta orðið svo áberandi að fólk talar bjagaða íslensku með enskum hreim. Stundum virðist jafnvel erfitt að klára setningu án þess að fylla í eyðurnar með enskum orðum. Ég kýs að kalla þennan talsmáta „ísl-ensku“ – blöndu af íslensku og ensku sem virðist vera að festa sig í sessi í daglegu tali ungs fólks. Auðvitað þróast tungumál. Þau hafa alltaf tekið upp orð úr öðrum tungumálum og það er ekkert nýtt fyrirbæri. En það er munur á eðlilegri þróun tungumáls og því þegar fólk hættir smám saman að finna orð á eigin tungumáli og grípur sjálfkrafa til annars. Þegar slettur verða ekki lengur undantekning heldur regla er ástæða til að staldra við. Tungumál er ekki aðeins tæki til samskipta; það er einnig hluti af menningu okkar, sjálfsmynd og sameiginlegri arfleifð. Íslenskan hefur lifað í meira en þúsund ár og er eitt sterkasta tákn íslenskrar menningar. Það væri því sorglegt ef hún færi smám saman að veikjast í daglegu tali nýrrar kynslóðar. Það sem veldur mér þó mestum áhyggjum er hvaða áhrif þessi þróun getur haft á ungt fólk sjálft. Þegar orðaforði veikist og fólk á erfiðara með að setja hugsanir sínar skýrt fram verður umræðan fátækari og tjáningin ómarkvissari. Tungumálið er verkfæri hugsunar, og án sterks tungumáls verður hugsunin sjálf óskýrari. Hver lausnin við þessu vandamáli er veit ég ekki með vissu. En eitt er ljóst, við getum ekki látið eins og ekkert sé að gerast. Ef við viljum að íslenskan haldi áfram að vera lifandi tungumál verðum við að leggja rækt við hana, ekki síst í máli ungs fólks. Ef við hættum að leggja rækt við tungumálið okkar veikjum við ekki aðeins orðaforðann heldur líka hugsunina sjálfa. Þjóð sem gleymir móðurmáli sínu missir smám saman eitthvað af sjálfri sér. Þess vegna skiptir það máli að íslenskan sé ekki aðeins varðveitt í bókum, heldur lifandi í máli nýrrar kynslóðar. Höfundur er ungur Keflvíkingur, hlaðvarpsstjórnandi og stjórnarformaður Mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íslensk tunga Samfélagsmiðlar Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar