Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 08:02 Chelsea-maðurinn Pedro Neto biður hér franska boltastrákinn afsökunar. Getty/Justin Setterfield Chelsea tapaði með þriggja marka mun í fyrri leik sínum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og pirringurinn fór vel yfir mörkin þegar Chelsea-maðurinn Pedro Neto hrinti boltastrák.
Atvikið gerðist í blálokin, þegar staðan var 4-2 fyrir Parísarliðið, en heimamenn náðu að bæta við marki og vinna leikinn 5-2. Neto lagði báðar hendur á ungan boltastrák í uppbótartímanum sem varð til þess að strákurinn féll í stól og olli miklum átökum milli beggja liða á Parc des Princes. Ég er þegar búinn að tala við hann Þegar Neto var spurður út í atvikið á TNT Sports eftir leikinn sagði hann: „Ég vil biðja boltastrákinn afsökunar. Ég er þegar búinn að tala við hann,“ sagði Neto. Pedro Neto shoved a PSG ball boy when he was trying to get a ball for a throw-in. pic.twitter.com/y7mJ2Jq68g— ESPN FC (@ESPNFC) March 11, 2026 „Við vorum að tapa og í hita leiksins vildi ég ná í boltann fljótt og hrinti honum aðeins. Ég er ekki svona. Þetta gerðist í hita augnabliksins og ég vil biðjast afsökunar. Ég gaf honum treyjuna mína. Mér þykir þetta virkilega leitt og mér finnst ég verða að biðja hann afsökunar,“ sagði Neto. Sagði honum að ég væri ekki svona. „Franskan mín er ekki mjög góð og liðsfélagi minn í portúgalska landsliðinu, Vitinha, kom og sagði honum að ég væri ekki svona. Í lokin brosti hann [boltastrákurinn] og ég gaf honum treyjuna mína og baðst afsökunar svona 35 sinnum. Hann sá hvað hafði gerst og var ánægður með útkomuna,“ sagði Neto. Óvíst er hvort Neto muni sæta frekari refsingu frá UEFA, en gjörðir hans áttu sér stað í miðju hruni Chelsea-liðsins. Liam Rosenior aðalþjálfari tók undir afsökunarbeiðnina og bætti við: „Ég sá að það urðu einhver átök við boltastrákinn. En ef eitthvað af okkar hálfu var rangt eða óviðeigandi, þá biðst ég afsökunar fyrir hönd félagsins.“ „En ég held að Pedro hafi gert það í viðtölum. Ég hef satt best að segja ekki séð þetta aftur,“ sagði Rosenior. 🎙️Pedro Neto: I gave him my shirt. I'm really sorry about it, I feel I have to apologise to him. My French is not very good, and (Portugal team-mate) Vitinha came over and said to him I was not like this.”“At the end he (the ball boy) laughed and I gave him my shirt and said… pic.twitter.com/WMJOW58jWu— Blue Season Daily (@BlueSeasonDaily) March 11, 2026
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjá meira