Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Sindri Sverrisson skrifar 12. mars 2026 11:30 Antonin Kinsky mun líklega aldrei gleyma leiknum í Madrid á þriðjudaginn. Getty/Diego Souto Antonin Kinsky, hinn 22 ára markvörður Tottenham, er þakklátur þeim sem hafa reynt að hughreysta hann eftir mistökin skelfilegu sem hann gerði í 5-2 tapinu gegn Atlético Madrid á þriðjudaginn.
Igor Tudor tefldi Tékkanum óvænt fram í byrjunarliði, á kostnað Vicario, en skipti honum svo af velli eftir aðeins 17 mínútna leik. Þá hafði Kinsky þegar fengið á sig þrjú mörk og gert risastór mistök í fyrsta og þriðja markinu. „Takk fyrir skilaboðin. Frá draumi í martröð og að draumi aftur. Sjáumst,“ skrifaði Kinsky á Instagram. Samherjar hans reyndu að hugga hann á meðan hann gekk inn til búningsklefa og þá hafa margir sérfræðingar, markverðir sem einnig hafa gert afdrifarík mistök, stutt við Tékkann í vikunni. Tudor hefur verið gagnrýndur fyrir þá ákvörðun að taka Kinsky af velli á meðan að aðrir, til að mynda Hjörvar Hafliðason í samtali við Vísi, sýna ákvörðun Tudors fullan skilning. „Þetta var nauðsynlegt til að þess að verja manninn og verja liðið,“ sagði Tudor sjálfur um skiptinguna. „Fyrir leikinn var þetta rétt ákvörðun miðað við þá stöðu sem við erum í – pressa á Vicario, önnur keppni og Toni er mjög góður markvörður. Fyrir mér var þetta því rétt ákvörðun. Eftir á er auðvelet að segja að þetta hafi ekki verið rétt ákvörðun,“ sagði Tudor. „Ég útskýrði fyrir Toni, þegar ég talaði við hann eftir á, að hann væri rétti maðurinn og góður markvörður. Því miður urðu þessi mistök í þessum stóra leik,“ sagði Tudor. Næsti leikur Tottenham er gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Ljóst er að Tudor stýrir Tottenham í þeim leik en liðið er þó aðeins stigi frá fallsæti fyrir helgina. Tottenham leikur svo seinni leikinn við Atlético næsta miðvikudagskvöld, í London.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Enski boltinn Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira