Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Freyja Þórisdóttir skrifar 12. mars 2026 21:51 Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri BSBR, heildarsamtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Aðsend Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB, stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Hún hefur mikla reynslu af störfum fyrir verkalýðshreyfinguna.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu sem birt var á vef samtakanna í dag. BSRR hét áður Bandalag starfsmanna ríkis og bæja en nafninu var breytt í BSRB með breytingu á lögum þess árið 2015. „Verkalýðshreyfingin stendur á tímamótum. Það er vegið að réttindum launafólks, hvort sem er á opinberum vinnumarkaði eða almennum og sístækkandi hópar búa við óviðunandi kjör. Samhliða varnarbaráttu sækjum við fram því þrátt fyrir sterka verkalýðshreyfingu sem náð hefur miklum árangri blasa áskoranirnar við. Ég hlakka til að fást við þessi verkefni með öflugu forystufólki BSRB og frábæru starfsfólki“ segir Sigríður. Sigríður starfaði áður sem hagfræðingur fyrir BSRR í um sjö ár en hún starfaði jafnframt sem hagfræðingur hjá ASÍ í fjögur ár. Hún var Alþingismaður á árunum 2009-2016 þar sem hún var meðal annars formaður velferðarnefndar og fjárlaganefndar. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.Vísir/anton brink Hún starfaði einnig sem sérfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu og á Hagstofu Íslands. Hún er með MPA menntun í stjórnun og stefnumótun, meistarapróf í viðskipta- og hagfræði og BA próf í sagnfræði. „Það er mikill fengur fyrir okkur hjá BSRB að fá Sigríði Ingibjörgu til liðs við okkur. Sigríður býr yfir mikilli reynslu á sviði vinnumarkaðsmála og hefur sýnt það í störfum sínum að hún er ötull talsmaður opinberrar þjónustu og öflug í baráttunni fyrir betri vinnuskilyrðum og lífskjörum aðildarfélaga bandalagsins“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB.
Tímamót Stéttarfélög Vistaskipti Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira