Það er gott að hafa „góðar tengingar“ í Kópavogi. 2 af 4. Theodóra S. Þorsteinsdóttir skrifar 14. mars 2026 12:10 Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn samþykktu nýlega að kynna breytingar á óbyggðu lóðinni við Nýbýlaveg 1, sem hefur verið skilgreind undir verslun og þjónustu, en stendur nú til að breyta í íbúðabyggð. Tilefni þessarar vegferðar er fyrirspurn fasteignaþróunarfélagsins Klasa frá því í lok árs 2023 þar sem kom fram að það væri mat Klasa að heppilegasta nýting lóðarinnar væri fyrir íbúðir. Í mínum huga kom erindið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Því er ekki úr vegi að fara aðeins yfir söguna. Sagan Á árinu 1969 fór Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) að sýna því áhuga að fá lóð undir nýja bensínstöð innan marka Kópavogs. Kópavogskaupstaður tók ágætlega í umleitanirnar á þeim tíma en útskýrði fyrir félaginu að kaupstaðurinn þyrfti fyrst að gera eignarnám á leiguréttindum Geirs Gunnlaugssonar úr landi Lundar. Úr varð samkomulag árið 1974 um að kaupstaðurinn færi í þá vegferð, og síðar yrði Olís úthlutað lóð undir bensínstöð með venjulegum úthlutunarskilmálum. Félagið skyldi svo greiða Kópavogskaupstað fyrir eignarnámsbæturnar til landeiganda. Landeigandinn var ósáttur við niðurstöðu matsnefndar og skaut málinu til dómstóla. Í mars árið 1977 greiddi Olís bótafjárhæðina. Þrátt fyrir að greiðslan til landeiganda hefði verið innt af hendi voru aðilar sammála um að bíða með úthlutun lóðarinnar þar til niðurstaða dómstóla lægi fyrir og búið væri að klára endanlegt skipulag svæðisins. Árið 1980 náðist sátt við landeigandann um eignarnámið, en ekkert varð af úthlutun lóðarinnar. Síðan tók við margra ára tímabil þar sem Olís sendi ítrekað inn erindi til Kópavogsbæjar. Af gögnum málsins má ráða að eftir því sem árin liðu var bæði lítill vilji hjá Kópavogsbæ til að setja þarna bensínstöð ásamt því sem efasemdir voru uppi um rétt Olís til lóðarinnar, því engin gögn fundust um úthlutun hennar til þeirra. Jafnframt gerði Vegagerðin ítrekað grein fyrir ómögulegum tengingum fyrir bílaumferð inn á lóðina og óskaði eftir því að þessi lóð yrði tekin út af skipulagi. En svo kom Klasi Það var ekki fyrr en Klasi kom til sögunar að hlutirnir fóru að hreyfast. Kannski ekki eins hratt og Halldór Benjamín stjórnarmaður í Klasa hefði óskað, en það er augljóst að nú er miklu meiri pólitískur vilji til að verða við erindinu. Það eru nokkur ár síðan Kópavogsbær lýsti því yfir að þarna yrði ekki bensínstöð, en ef byggt yrði á lóðinni gerði skipulagið ráð fyrir einnar hæða verslunar- eða þjónustu byggingu. Það er augljóslega ekki nóg fyrir Klasa, því fyrsta tillaga þeirra var að byggja þarna 9 hæða fjölbýlishús. Síðar breyttu þeir því í tvö 5-6 hæða fjölbýlishús. Íbúar hafa, með miklum samtakamætti, mótmælt þessum áformum harðlega en það virðist lítið hreyfa við Sjálfstæðisflokknum. Hann er lagður af stað með breytingar á skipulagi lóðarinnar yfir í íbúðabyggð, fyrir Klasa. En hvernig fékk Klasi lóðina? Það var í júní 2024 að við bæjarfulltrúar fréttum af því að formlegur lóðarleigusamningur til 50 ára hefði verið gerður við Olís tveimur árum áður. Þar sáum við fyrst að bæjarráði hafi verið falið eftirlit með því að Olís myndi byggja þar hús „eigi síðar en 30. mars 2025“. Þetta er lóðarleigusamningur um atvinnulóð þar sem sérstök skilyrði eru um að ekki verði reist bensínstöð á lóðinni, en að lóðarhafi muni óska eftir breytingu á deiliskipulagi hennar. Ekkert er minnst á að breyta nýtingu úr atvinnulóð í íbúðabyggð, sem kallar á breytingu á Aðalskipulagi Kópavogsbæjar, enda hefði þá alls ekki átt að gera þennan lóðarleigusamning. Þegar beiðni barst bæjarráði árið 2022 um framsal lóðarinnar frá Olís til BBL 178 hefði verið eðlilegt að upplýsingar um lóðarleigusamninginn fylgdu erindi bæjarstjóra, en svo var ekki. Þá hafði félagið Hagar keypt Olís, og Samkeppniseftirlitið samþykkt samruna Haga, Regins og Klasa. Til að gera langa sögu stutta þá er BBL 178 dótturfélag Klasa, sem er í dag m.a. í eigu Haga og Heima (sem eiga Smáralind o.fl). Ekki áttu eintak? Þegar áðurnefnd framsalsbeiðni frá Högum barst spurði bæjarlögmaður prúðmannlega hvort Hagar ættu eintak af einhverju gömlu samkomulagi sem þeir hefðu nefnt á fundi. Lögmaðurinn hafi reynt að finna gögn hjá Kópavogsbæ en án árangurs. Þetta samkomulag, sem var vélritaður gamall bleðill í förum Haga, var tekinn gildur til staðfestingar á rétti Olís til lóðarinnar, og framsalið fór fram. Og hvað er nú títt? Á meðan Sjálfstæðisflokkurinn vinnur úr athugasemdum frá íbúum við tillögu að breyttu skipulagi fyrir Nýbýlaveg 1, lögðum við í minnihlutanum fram tillögu þess efnis að Kópavogsbær undirbyggi uppsögn lóðarleigusamningsins, þar sem í honum er m.a. gert ráð fyrir að hús skuli fullgert eigi síður en í mars í fyrra. Miðað við kynnt áform blasa við vanefndir af hálfu lóðarhafa, sem heimilar bænum að afturkalla lóðina. Viðbrögð við tillögu okkar voru þau að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins töldu að uppsögn gæti fylgt orðsporsáhætta og vísuðu henni til umsagnar. Ég skil það eftir hjá lesendum að meta hvort sé meiri orðsporsáhætta: sagan um aðdraganda þessa lóðarleigusamnings eða uppsögn hans. Það virðist ekki duga Sjálfstæðisflokknum að hlusta á einróma athugasemdir íbúa og athugasemdir Vegagerðarinnar um ómöguleika vegtenginga til þess að stoppa þetta mál. Heyrst hefur að nú ætli flokkurinn að fara í viðræður við Vegagerðina um að koma á góðum tengingum við Nýbýlaveg 1 fyrir Klasa. En eins og við höfum ítrekað orðið vitni að þetta kjörtímabilið, virðist sem svo að með “góðum tengingum” þá hverfi flestar fyrirstöður í Kópavogi með ótrúlegum hraða. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Theódóra S. Þorsteinsdóttir Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að segja „JÁ“ snýst um sanngirni og framþróun Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun „Lýðræðisveisla“ sem skaðar lýðræðið. Forsetinn er á matseðlinum Júlíus Valsson skrifar Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hernaðarheilkenni Heimssýnar Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Hvað þarf til að verða sjúkraliði? Sandra B. Franks skrifar Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar Skoðun Sjálfbært laxeldi á Íslandi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Þau læra það börnin sem fyrir þeim er haft Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hvenær urðu Íslendingar svona uppteknir af því að eiga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar Skoðun Vægi Íslendinga gæti jafnast á við 15 milljónir Þjóðverja Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Af hverju tala þau svona? Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Hver gætir barnanna þegar kerfið bregst? Inga Sæland skrifar Skoðun Mörk réttarríkisins og friðhelgi einkasamskipta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Samfélagsmiðlar eru ekki barnaleikur Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir Skoðun
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Verðmætasköpunarhaustið? Af 1000 störfum voru 962 opinber og 38 á almenna markaðnum Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flýtum tvöföldun Vesturlandsvegar – í þágu umferðaröryggis Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun 24000 Íslendingar telja sig hafa skaðast alvarlega – af hverju er það ekki rannsakað? Jóhannes Loftsson skrifar
Skoðun Verðum við að sætta okkur við meira af bílhræjum og verri umgengni? Bergur Þorri Benjamínsson skrifar
Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir Skoðun