Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Freyja Þórisdóttir skrifar 14. mars 2026 15:11 Sveinn Ásgeir Jónsson sætti sig ekki við að borga rúmar sjö þúsund krónur fyrir eina pítsu. Vísir/Samsett Sveinn Ásgeir Jónsson tók málin í eigin hendur 12. febrúar þegar hann taldi sig ranglega rukkaðan um vangreiðslugjald. Hann kynnti sér málið, lagðist yfir gögn frá Neytendastofu, samningalög og innheimtulög og skrifaði andmælabréf með vísun til Hæstaréttar og sendi á Green Parking sem felldi kröfuna niður á innan við hálftíma.
Þetta segir Sveinn í samtali við fréttastofu. Hann lenti heldur illa í því í febrúar þegar hann fékk rukkun sem hljóðaði upp á 5.750 krónur í kjölfar þess sem átti að vera huggulegt pítsukvöld heima fyrir. Rukkunin hafði þó ekkert með pítsuna að gera heldur var um að ræða vangreiðslugjald frá fyrirtækinu Green Parking. Betur má ef duga skal Á vef þeirra segir „Við teljum að bílastæði eigi að vera vel merkt um gjaldskyldu og með auðvelt aðgengi fyrir þig, eiganda ökutækisins.“ En að mati Sveins mætti betur ef duga skyldi. Hann hafði stokkið inn á Domino's í Nóatúni til að sækja sér pítsu en það tók ekki nema nokkrar mínútur að hans sögn. „Daginn eftir birtist 5.750 kr. reikningur frá Green Parking í heimabankanum mínum. Engin viðvörun. Engin tilkynning. Ekkert samtal. Bara krafa,“ segir Sveinn í færslu á Facebook. Merkingar villandi Hann segir í samtali við blaðamann að skilti á svæðinu séu mjög villandi en þar eru fyrstu 45 mínúturnar auglýstar fríar. „Fyrstu 45 mínúturnar eru auglýstar „gjaldfrjálsar“ — en aðeins ef þú hleður niður appi, stofnar aðgang, skráir kreditkort og skráir bílinn rafrænt VIÐ KOMU. Gerir þú það ekki? 5.500 kr. sekt vegna nokkurra mínútna dvalar,“ segir Sveinn á Facebook. Sveinn varði einungis nokkrum mínútum á bílastæðinu við Domino's í Nóatúni.Ja.is Hann segir fyrirtæki nýta sér „lagalega grátt svæði“ og að þau viti að þetta megi ekki en nýti sér hræðslu fólks við að ganga hart að þeim. Sveinn hófst um leið handa við að rannsaka málið og skrifaði upp póst sem hann sendi bæði á Green Parking í tölvupósti og í gegnum kerfið þeirra. Allt gert til að fækka andmælendum „Þetta er í raun „complaint funnel“ — trekt sem er hönnuð til að fækka andmælum eins og hægt er. Fyrst sjálfvirkt svar sem segir „farðu annað“, svo 200 stafa takmörkun, svo ekki augljós viðhengishnappur. Hvert skref dregur úr líkum á að fólk klári andmælin,“ segir Sveinn um vefkerfi Green Parking. Allt sé gert til að fá neytendur til að játa sig sigraða og sleppa því einfaldlega að leiða málið til lykta. En Sveinn gafst ekki svo auðveldlega upp og fékk hann kröfuna niðurfellda á innan við þrjátíu mínútum. „Ég skrifaði andmælabréf. Vísaði í Hæstarétt, Neytendastofu, samningalög og innheimtulög. Skráði það formlega í kerfi þeirra,“ skrifar Sveinn í færslunni. Tók ekki nema hálftíma Úr því varð að krafan var felld niður á tæpum hálftíma. Eins og sjá má var svarið sem Sveinn fékk til baka í styttra lagi. „Af hverju? Af því að þeir vita að þetta stenst ekki. Þetta er tekjuöflun sem treystir á vanþekkingu fólks. Um leið og einhver sýnir tennurnar og krefst gagna er leikurinn búinn,“ skrifar Sveinn á Facebok. Svar Green Parking við andmælabréfi Sveins Ásgeirs Jónssonar.Aðsend „Það sem er líka áhugavert við þetta er að það virkar eins og svarið sé ekki skrifað af þjónustufulltrúa heldur af róbot. Það var ekkert „við skoðum málið“ heldur bara hætt við,“ bætir hann við í samtali við blaðamann. Sveinn nefnir að það sé grunsamlegt að ekki sé gerð tilraun til að ræða málið frekar heldur sé krafan látin niður falla um leið og komið er í gegnum kerfið. Hann vill sjá breytingar í þessum efnum og segir óskiljanlegt að fyrirtæki, með lögfræðinga á sínum snærum, skuli fá að njóta vafans umfram neytendur. Fréttin hefur verið uppfærð: Í upphaflegri útgáfu kom fram að Sveinn hafi lagt bílnum á stæðinu síðasta föstudag en hið rétta er að það var 12. febrúar.
Neytendur Bílastæði Reykjavík Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira