Ræddu umtalaða sigurkörfu KR: „Þetta er rosalega heimskulegt“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 13:40 Slátturinn örlagaríki á Meistaravöllum. sýn sport Umtöluð sigurkarfa KR gegn Keflavík í Bónus deild karla var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Magnús Þór Gunnarsson skilur ekki hvað leikmanni Keflavíkur, Mirza Bulic, gekk til þegar hann sló í boltann eftir skot Toms Elvis Leimanis.
Staðan var jöfn fyrir lokasókn KR. Þá átti Leimanis skot sem fór í hringinn og skoppaði til hliðar. Bulic sló í boltann í þann mund sem leiktíminn rann út og í kjölfarið var karfa dæmd gild. KR-ingar unnu því leikinn, 107-105. Mikið hefur verið rætt og ritað um þessa ákvörðun og Keflvíkingar eru afar ósáttir með dóminn. Magnús segir þó að Bulic eigi að vita betur en að tefla á tvær hættur með því að slá í boltann. „Boltinn átti aldrei möguleika á að fara ofan í. Þetta var galinn dómur út af því að maður vissi ekki betur. Svo er reglugerðin þannig að þetta má ekkert og þá ætla ég að setja spurningarmerki við þennan leikmann sem gerir þetta. Hann er búinn að spila á Spáni í mörg ár og er alls ekki ódýr útlendingur. Að honum hafi dottið það til dugar að slá þennan bolta í burtu. Láttu þetta bara skoppa í burtu. Þetta er rosalega heimskulegt,“ sagði Magnús í Bónus Körfuboltakvöldi í gær. Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - umræða um sigurkörfu KR Hörður Unnsteinsson, sem stýrði þættinum, sagði að reglurnar væru alveg skýrar, sama hvaða skoðun menn hafi á þeim. „Þeir vita allir að þetta er ólöglegt. Þetta má ekki. Reglurnar segja að boltinn verði að hafa möguleika á að fara ofan í,“ sagði Hörður og Hermann Hauksson tók svo orðið. „Þessi bolti var aldrei að fara ofan í. Hann var ekki nálægt því að fara ofan í. Hann var að skoppa frá hringnum. Það er galið að þetta skuli hafa verið dæmd karfa. KR getur unnið leiki án þess að skora,“ sagði Hermann sem leiddist að sjálfsögðu ekki að sjá KR-inga vinna sigur í leiknum. „Ég horfði á leikinn og vissi ekki hvað ég var að horfa á. Ég kunni ekki regluna en maður sá á látbragði allra Keflvíkinga að þeir vissu alveg að þetta voru mistök sem hann gerði.“ Hörður skaut þá inn í: „Spurningin er, á boltinn eftir að snerta hringinn aftur. Og svarið þarna er já. Boltinn átti eftir að snerta hringinn aftur og þá getur dómarinn held ég, samkvæmt reglunni, ekki annað gert en að dæma þetta sem körfu. Þetta er rosa heimskulegt.“ Í Bónus Körfuboltakvöldi var einnig tekið fyrir sambærilegt atvik frá EM í fyrra þar sem sami dómur var kveðinn upp og í leik KR og Keflavíkur. Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla KR Keflavík ÍF Körfuboltakvöld Tengdar fréttir „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR var að vonum sáttur með dramatískan sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að liðin skiptast á sætum þegar skammt er eftir af deildinni. 12. mars 2026 22:17 Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira
„Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Jakob Örn Sigurðarson þjálfari KR var að vonum sáttur með dramatískan sigur liðsins á Keflavík í kvöld. Sigurinn þýðir að liðin skiptast á sætum þegar skammt er eftir af deildinni. 12. mars 2026 22:17