Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma Tómas Arnar Þorláksson skrifar 14. mars 2026 16:20 Snjóflóð féll við Siglufjörð í nótt. Björgunarsveitin Strákar Símon Símonarsson, íbúi á Steinaflötum við Siglufjörð, segist engar áhyggjur hafa þótt honum og syni hans hafi verið gert að yfirgefa heimilið vegna snjóflóðahættu á svæðinu. Hann bíður rólegur eftir því að fá leyfi til að fara aftur heim.
Óvissustig er á norðanverðum Tröllaskaga en flennistórt snjóflóð féll við Siglufjörð í nótt. Lokað hefur verið fyrir umferð um Siglufjarðarveg, frá Ketilási að Strákagöngum, síðan í gærkvöld. „Okkur líður bara vel. Við erum ekki með nein dýr og þetta er allt í góðu. Vonandi gerist bara ekki neitt.“ Þetta segir Símon í samtali við fréttastofu. Lögreglan á Norðurlandi eystra greindi frá því að bærinn Steinaflatir hafi verið rýmdur í morgun að ósk Veðurstofu Íslands. „Þá hefur verið haft samband við alla sem eru með hross í hesthúsunum sunnan við bæinn og þeir upplýstir um að dvelja ekki þar að óþörfu. Veðurspáin er á þá leið að úrkoma er í kortunum næstu daga og því hvetjum við alla til að vera meðvituð um stöðuna og fylgjast með,“ segir í Facebook-færslu lögreglunnar. Símon kveðst ánægður með viðbrögð Veðurstofunnar og lögreglunnar. Hann fagnar því að öryggið sé sett á oddinn. „Snjóflóðið varð hinu megin við bæinn hjá ströndinni. Við fundum ekki fyrir þessu. Þetta er nokkra kílómetra frá,“ segir Símon sem segist ekki vita hvenær hann fái að snúa aftur heim. „Það þarf bara að bíða eftir leyfi,“ segir hann. En eruð þið spennt að komast heim? „Já, maður er alltaf spenntur að komast heim,“ segir hann og bætir við að þau dvelji á Siglufirði á meðan.
Veður Snjóflóð á Íslandi Fjallabyggð Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira