„Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. mars 2026 13:17 Lydía Kims framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar. vísir/aðsend Isavia lokaði í fyrrinótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli þrátt fyrir að félagið hafi að eigin sögn fengið greiðsluskjól vegna vangreiddrar leigu samkvæmt dómsúrskurði. Framkvæmdastjóri verslunarinnar kveðst hrædd og sakar rekstraraðila flugvallarins um lögbrot.
Isavia heldur því fram að Rammagerðin skuldi leigu og því sé rétt að loka versluninni en Rammagerðin vill meina að forsendur leigusamningsins séu með öllu brostnar. Forsvarsaðilar Isavia hafa ekki gefið kost á viðtali fram að þessu. Lokun verslananna kemur í kjölfar þess að Lydía Kims, framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar, gagnrýndi framferði og starfshætti Isavia og sagðist ætla fara fram á lögbann gegn rekstraraðilum flugvallarins í samtali við fréttastofu á föstudag. Hrædd og ringluð Lydía segir það hafa komið verulega á óvart að versluninni hafi verið lokað í annað sinn í vikunni. „Við erum vafalaust hrædd. Okkur brá talsvert. Þetta skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd. Ég hafði svo sem haft orð á því við okkar lögfræðinga að ég væri hrædd um að Isavia væri líklegt til þessa miðað við hvernig þeir hefðu haft orð á en menn náttúrulega trúðu því ekki og sögðu bara að það væri stórkostlega ólöglegt og að svona framkvæmdir þyrftu að gerast fyrir atbeina sýslumanns.“ Lydía segir farþegafjölda um flugstöðina talsvert undir þeim spám Isavia sem leiguverðið er byggt á. Þá hafi Rammagerðin fengið verslunarpláss afhent of seint. „Við fengum búðina afhenta níu mánuðum of seint og samt var innheimt fulla leigu allan tímann og síðan hafa verið framkvæmdir fyrir utan búðina statt og stöðugt. Og brottfall play og tollastríð og í ofanálag alls konar atriði sem hafa þau áhrif að mörgum mörgum milljónum færri ferðamenn koma hingað en sá fjöldi sem var lagður að okkur í útboðinu. Lögfræðingarnir eru alveg skýrir við Isavia. Það er mikill afsláttur inni sem hefur aldrei verið tekinn til tals. Því er bara ómögulegt að samþykkja þeirra kröfu án þess að okkar krafa á móti sé vegin inn og þessi niðurstaða fengin samkvæmt lögum.“ Hótuðu að loka á allan aðgang að flugvellinum Málið verður tekið fyrir af Héraðsdómi Reykjaness fyrsta apríl. Lydía segist hafa hringt á lögregluna til að fá greiðsluskjólinu framfylgt en ekki fengið nein viðbrögð. „Mér var bara ráðlagt eða sagt af okkar lögfræðingum, frá þessum tveimur stofum, að hringja rakleiðis á lögregluna, sem ég gerði á laugardagsmorgni. Það fór svo sem ekki mikið lengra en það endaði þannig að þeir ætluðu að biðja lögregluna inni á flugstöðinni að hafa samband við mig en það hefur enginn haft samband,“ segir hún og óskar eftir því að Isavia fái aðstoð til að fara eftir lögum. Þá hafi hún engin svör fengið frá forsvarsmönnum Isavia á síðustu dögum. „Ég hef sent pósta á stjórnarmann Isavia til að óska biðlundar og leggja á borðið hve alvarlegt þetta er og sorglegt og leiðinlegt og hvort við getum ekki gripið til almennrar skynsemi og þá að fylgja lögum. Einhvern veginn hefur ekkert orðið úr því. Ég hef ekki átt nein munnleg samskipti frá því að þau hringdu í mig og sögðu mér að ef ég skyldi reyna fjarlægja þeirra tálmanir við verslunina þá myndu þeir loka á alla aðgangspassa okkar inn í flugstöðina. Þarna finnst manni mikið lögbrot eiga sér stað.“ „Þá náttúrulega erum við bara í valnum“ Rammagerðin gæti verið að syngja sitt síðasta á flugvellinum ef ekki fæst farsæl niðurstaða í málið að hennar mati. „Við erum uggandi yfir því að þeir taki þarna frammi fyrir sýslumann og héraðsdómara og bara loki á okkur. Ef þeir loka bara á okkur með sínu, offorsi, að þá náttúrulega erum við bara í valnum. Það er staðreyndin,“ segir hún og tekur fram að 30 starfsmenn starfi fyrir Rammagerðina á flugvellinum. Áhrifin yrðu víðtæk. Rammagerðin hafi verið með starfsemi á flugvellinum frá upphafi. Hún segir samningsstöðu fyrirtækja gagnvart Isavia verulega skakka. Hún kveðst vita til þess að fjölmörg önnur fyrirtæki séu í vandræðum á flugvellinum. „Við erum sannarlega nauðbeygð til þess að bjóða eins bara hátt og mögulega fræðilegt er án þess að vera að skila neinu út úr þessu. Við erum fyrirtæki sem hefur aldrei greitt nokkurn arð. Við erum þarna inni af því að að okkur finnst það skipta máli. Það er okkar DNA. Við höfum verið þarna frá því að flugstöðin opnaði. En fermetraverðið sem við erum að borga þarna, geturðu ímyndað þér, er sko, út úr kortinu miðað við allar tölur nokkurs staðar annars staðar á landinu. Þetta er allt ótrúlega sérstakt. Eins og menn vita og hafa séð, þá hafa hrökklast þarna út stórkostlega flott vörumerki, Joe & The Juice, Kaffitár og núna nýjast þarna stóru flottu erlendu aðilarnir með mathöllina sem að þeir vissulega byggðu upp fyrir mikla peninga.“
Keflavíkurflugvöllur Verslun Deilur ISAVIA og ALC Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira