Ofbeldi innan eða í skjóli stofnana – ákall um viðbrögð Drífa Snædal skrifar 18. mars 2026 07:01 Ofbeldi innan stofnana er ekki óþekkt hér á landi frekar en annars staðar. Í gegnum tíðina höfum við fylgst með brotaþolum segja frá sinni reynslu, oft áratugum eftir ofbeldið. Við þekkjum Landakotsmálið, Hjalteyri, Laugaland, Breiðuvík, brotaþola Karls Vignis, fyrrum biskups og Skeggja Ásbjarnarsonar svo dæmi séu tekin. Nýlega hafa bæst við Múlaborg og Bakkakot í hinni opinberu umræðu. Því miður munu fleiri mál sennilega koma upp á yfirborðið, kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi hefur ekki verið útrýmt og oft er fjöldi brotaþola á bak við hvern geranda. Við þekkjum það vel á Stígamótum að það er eðlilegt að það taki ár ef ekki áratugi fyrir brotaþola að segja frá og að leita sér aðstoðar, hvað þá að stíga fram opinberlega. Þessi mál eiga það flest sameiginlegt að brotin eru framin þar sem fólk, yfirleitt börn, eiga að njóta skjóls, verndar og öryggis. Ofbeldið er framið af fólki í valdastöðu sem brýtur á börnum, fólk sem hefur verið skipað í valdastöðu af samfélaginu okkar og treyst fyrir öðru fólki. Í umfjöllun sumra mála kemur í ljós mikil gerendameðvirkni og ofbeldismenn jafnvel enn á valdastóli eða í hávegum hafðir Ofbeldisbrot eru brot á trausti og trúnaði og afleiðingarnar fyrir brotaþola eru skömm, sjálfsásakanir, sjáfskaðandi hegðun, einangrun, sektarkennd, erfiðleikar með traust og fleiri afleiðingar sem hafa veruleg áhrif á lífsgæði. Þegar ofbeldið hefur átt sér stað innan veggja eða í skjóli stofnana geta afleiðingarnar orðið mjög skert traust til stofnana og vantraust til valds og valdhafa. Það eru rökréttar og eðlilegar tilfinningar og margir myndu segja jafnvel sanngjarnar. Kerfin sem áttu að vernda og hlúa að brugðust og eftir situr vantraust á þessum kerfum. Í kjölfarið getur verið erfitt að fóta sig í samfélagi sem byggir á valdakerfum. Reiði brotaþola sem fá ekki viðbrögð frá yfirvöldum þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir og ákall um rannsóknir, afsökunarbeiðnir eða sanngirnisbætur er því skiljanleg. Ný og ný mál koma upp og brugðist er við, stundum handahófskennt í stundinni og oft bara gagnvart brotaþolum þess einstaka máls. Það er gott og gilt en brotaþolar sem ekki hafa fengið áheyrn sitja óbættir hjá garði. Nýlega kom opinberlega ákall frá þeim sem upplifðu ofbeldi á Hjalteyri um áheyrn og úrlausn. Brotaþolar Skeggja sem hafa hist á vettvangi Stígamóta hafa einnig sent dómsmálaráðherra erindi og lögð var fram fyrirspurn á Alþingi um úrlausn þeirra mála. Það er óþolandi að brotaþolar þurfa að standa í stappi við yfirvöld árum og áratugum saman eftir viðurkenningu og úrlausn sinna mála. Ábyrgðin á úrbótum og réttlæti á ekki að vera á þeirra herðum. Það er heldur ekki sæmandi að við bregðumst við handahófskennt í einstaka málum en gleymum öðrum. Við verðum að koma upp ákveðnum vinnubrögðum þar sem brotaþolar ofbeldis í skjóli stofnana geta sagt frá, fengið áheyrn og viðurkenningu, jafnvel afsökunarbeiðni og sanngirnisbætur ef því er að skipta. Málin eru því miður of mörg til að vera með handahófskennd viðbrögð í hvert skipti sem ný mál birtast í fjölmiðlum. Slíkt veldur sárum langt út fyrir einstaka mál, ýfir upp erfiðar minningar fjölda fólks og staðfestir áhugaleysi valdahafa í gömlum málum. Ég óska eftir því að brotaþolar ofbeldis innan eða í skjóli stofnana svo og aðstandendur þeirra hafi vettvang innan kerfisins til að leita til. Að það sé til farvegur til að vinna úr vantrausti og sársauka í stað handahófskenndra viðbragða. Stígamót eru að sjálfsögðu hér eftir sem hingað til tilbúin til að leggja þekkingu og reynslu til enda höfum við haldið utanum fjölmarga hópa brotaþola sem bíða úrlausnar kerfisins í gegnum tíðina. Höfundur er talskona Stígamóta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Drífa Snædal Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun