Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Samúel Karl Ólason skrifar 18. mars 2026 09:34 Stjórnendur iðnfyrirtækja telja margir að störfum muni fækka á næstu mánuðum og draga muni úr fjárfestingu. Vísir/Vilhelm Fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja telja að aðstæður í efnahagslífinu séu slæmar fyrir þeirra fyrirtæki en þeir sem telja aðstæðurnar góðar. Munurinn er töluverður og hefur orðið alger viðsnúningur þar á frá því fyrir ári síðan. Stjórnendur vænta samdráttar í fjárfestingum og þykja svör þeirra í nýrri könnun benda til stöðnunar í fjárfestingum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum nýrrar könnunar Samtaka iðnaðarins en þar segir að það hafi ekki gerst frá árinu 2020 að fleiri svarendur telji aðstæður í efnahagslífinu slæmar en telji þær góðar. Nú meti stjórnendur iðnfyrirtækja aðstæður almennt verri en þær hafa gert frá 2020 og er hlutfall þeirra sem meta aðstæður slæmar það hæsta frá því ári. Alls svöruðu 36 prósent svarenda í könnuninni á þann veg að aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi væru slæmar fyrir þeirra fyrir tæki. Fyrir ári síðan var hlutfallið sautján prósent. Rúmur fjórðungur svarenda, eða 26 prósent, sögðu aðstæður góðar en fyrir ári síðan var það hlutfall 54 prósent. 38 prósent svarenda sögðu aðstæður hvorki góðar né slæmar. Fjöldi þeirra stjórnenda sem telja aðstæður fyrir iðnfyrirtæki þeirra hafa versnað hefur aukist töluvert milli ára. Í könnun SI kom einnig í ljós að fleiri stjórnendur telja að aðstæður muni versna á næstu sex til tólf mánuðum en telja að þær muni verða betri. 36 prósent sögðust telja að þær myndu versna, sem er sama hlutfall og taldi aðstæður vera slæmar, en einungis fimmtán prósent svarenda sögðust telja að aðstæður myndu verða betri. Fyrir ári síðan töldu tólf prósent svarenda að aðstæður myndu versna og 39 prósent að þær myndu verða betri. Mikil breyting hefur orðið á viðhorfi stjórnenda iðnfyrirtækja varðandi hvernig þeir telja að aðstæður muni breytast á næstu mánuðum. Telja að störfum muni fækka Í könnuninni voru stjórnendur einnig spurðir hvort þeir teldu að þróun fjölda starfsmanna í þeirra fyrirtækjum yrði á næstu tólf mánuðum. Í fyrsta sinn frá 2020 sögðust fleiri stjórnendur telja að starfsmönnum muni fækka en fjölga. Alls sögðu 23 prósent svarenda að störfum myndi fækka og tuttugu prósent sögðu að þeim myndi fjölga. Eins og í öðrum svörum í könnuninni er um töluverðan viðsnúning að ræða frá síðasta ári. Þá töldu þrettán prósent að störfum myndi fækka og 28 prósent að störfum myndi fjölga.
Efnahagsmál Vinnumarkaður Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira