Helstu einkenni breytingaskeiðsins og mögulegar lausnir Stefán Árni Pálsson skrifar 19. mars 2026 12:02 Halldóra ráðleggur konur sem fara á breytingarskeiðið. Um helmingur mannkyns fer á breytingaskeiðið og geta fylgikvillar þess verið fleiri en konur kæra sig um að kunna að telja. Á meðal kvilla eru þurrkur í leggöngum og áreynsluþvagleki og er hægt að vinna bug á þessum óþægindum með staðbundnu estrógeni sem smurt er á kynfæri.
Hödd Vilhjálmsdóttir settist niður með Halldóru Skúladóttur breytingaskeiðsráðgjafa í Íslandi í dag á Sýn í gærkvöldi og fékk að fræðast um þetta og fleira varðandi hið óumflýjanlega skeið kvenna. Í dag er það þannig að ef kona fær hausverk þá er hún líklega á breytingaskeiðinu. Ef hún er pirruð þá er hún á breytingaskeiðinu og ef hún gleymir peningaveskinu á kortinu sínu þá er hún kannski með heilaþoku vegna breytingaskeiðsins. Hvað er hægt að gera? Í kringum fertugt byrjar ástandið oft alveg fyrirvaralaust. Prógesterónið dettur niður, blæðingarnar breytast, svefninn raskast og meira að segja yndislegi makinn þinn, sem þú venjulega sérð ekki sólina fyrir, er farinn að anda fullhátt fyrir þinn smekk. Hvað er að gerast og hvað er hægt að segja meira um þetta blessaða skeið? Allir konur sem ná ákveðnum aldrei fara á breytingarskeiðið. „Það er lítið um þetta rætt, mikið feimnismál og svona hræðsla sem fylgir einmitt þessari umræðu bara um hormónauppbótarmeðferð. Sumar kreppa hnefana, bíta á jaxlinn og halda áfram og láta eins og ekkert sé. En í dag erum við sem betur fer töluvert meðvitaðri um áhrifin sem breytingaskeiðið getur verið að hafa á konur. Og þá erum við að tala um bæði þeirra andlegu og líkamlegu líðan en líka þeirra sambönd. Það getur verið að hafa áhrif á starfsferilinn þeirra og sjálfsmyndina og heilt yfir líðan,“ segir Halldóra. Fara allar konur á breytingaskeiðið? „Ef við lifum það lengi þá erum við þess heiðurs aðnjótandi að fara á þetta blessaða skeið. Auðvitað upplifa konur þetta mjög misjafnt. Sumar konur bara upplifa frelsi og hætta á blæðingum og svo eru öldurnar farnar að lægja og þær eru farnar að skilja hvað er í gangi, fá kannski einhverja aðstoð. Þá heyri ég oft, nú er ég loksins farin að segja nei og setja mörk. En svo erum við líka bara alveg stór hluti kvenna sem að finna fyrir erfiðum einkennum,“ segir Halldóra. Í 30 stiga hita í ullarsokkum Hver eru helstu einkenni breytingaskeiðs? „Það er náttúrulega alltaf verið að tala um þessi alræmdu hitakóf sem mjög margar konur fá en alls ekki allar. Ég var til dæmis ein af þeim sem voru frekar svona að fá kuldaköst. Ég bjó í Þýskalandi á þessum tíma þegar ég var svona að uppgötva þetta og það var víst kannski 30 stiga hiti úti og ég sat inni í hérna við skrifborðið mitt í lopapeysu, ullarsokkum og hitablásara og að spá í af hverju húsið væri svona skringilega einangrað. Það er bara kalt. Ég er enn þar.“ Halldóra nefnir einnig til sögunnar mikla þreytu og orkuleysi. „Svo eru dæmi um vöðva- og liðverki, heilaþoku og svo er það andlega hliðin. Og það kom mér rosalega á óvart þegar ég áttaði mig á því að tíðni andlegrar vanlíðunar stóreykst þegar konur detta inn á þetta skeið. Þessi hormón hafa náttúrulega áhrif inn í heilann líka,“ segir Halldóra og bendir á að ástandið hafi leitt til sjálfsvíga. „ Það eru komnar út margar rannsóknir á þessu og hversu tengslin milli þess að hormónarnir hverfa og hversu andleg vanlíðan eykst. Við erum að tala um bara allt frá kvíða og þunglyndi yfir í að sjálfsmatið og sjálfstraustið fer niður. Mér finnst ég heyra þetta rosalega oft þegar ég er að hitta konur í ráðgjöf. Ég upplifði þetta líka og þekkti í rauninni ekki sjálfa mig.“ Halldóra fer einnig yfir það hvernig breytingaskeiðið getur haft áhrif á kynlíf kvenna og kynlöngun þeirra í innslaginu hér að neðan.
Ísland í dag Heilsa Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Bíó og sjónvarp Afþakkar Grammy-tilnefningu Tónlist Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Skvísur og gæjar í útgáfuhófi Tatjönu Tónlist Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Fleiri fréttir Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Sjá meira