Viðskipti innlent

Í­búðum til sölu fjölgar veru­lega frá ára­mótum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins urðu 264 nýjar íbúðir fullbúnar á landinu öllu.
Á fyrstu tveimur mánuðum ársins urðu 264 nýjar íbúðir fullbúnar á landinu öllu. Vísir/Vilhelm

Íbúðum til sölu hefur fjölgað verulega frá áramótum. Í byrjun janúar voru 5.100 íbúðir skráðar til sölu á landinu öllu en í byrjun mars voru þær yfir 6.000 talsins.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Íbúðum til sölu hefur fjölgað mest á höfuðborgarsvæðinu eða um tæplega 440 íbúðir, samanborið við tæplega 270 íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og rúmlega 160 íbúðir annars staðar á landsbyggðinni. 

„Á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess má rekja framboðsaukningu undanfarinna mánaða til fjölgunar bæði nýrra og eldri íbúða til sölu. Á landsbyggðinni skýrist framboðsaukningin hins vegar að lang mestu leyti af fjölgun nýrra íbúða til sölu sem tengjast margar hverjar tveimur nýjum fjölbýlum á Akureyri,“ segir í samantekt um skýrsluna.

Um það bil 68 prósent allra leigusamninga á landinu í byrjun marsmánaðar voru um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, 15 prósent íbúðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og 17 prósent íbúðir annars staðar á landsbyggðinni. Dreifing leigusamninga er í grófum takti við dreifingu mannsfjöldans.

Hrein ný óverðtryggð lántaka hjá bönkunum nam 3 milljörðum króna í janúar 2026 en hrein ný verðtryggð lántaka nam 1,1 milljarði króna, segir í skýrslunni.

„Þannig voru hrein ný óverðtryggð lán í miklum meirihluta hjá bönkunum í mánuðinum. Hjá lífeyrissjóðunum voru verðtryggð útlán hins vegar nánast allsráðandi en uppgreiðslur á óverðtryggðum lánum umfram ný útlán námu hálfum milljarði króna í mánuðinum.

Undanfarna mánuði hefur hægt á uppgreiðslum óverðtryggðra lána samhliða lækkun stýrivaxta og samhliða hefur hægt á lækkun hlutfalls óverðtryggðra lána af heildaríbúðalánum til heimila. Hlutfallið stóð í 34,5% í janúar síðastliðnum og hafði þá lækkað samfellt frá því að það náði hámarki í rúmlega 55% um mitt ár 2022.“

Hér má finna skýrsluna í heild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×