Afroman fagnaði sigri gegn sjö lögregluþjónum Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. mars 2026 15:13 Afroman fagnaði innilega þegar hann vann meiðyrðamál sem sjö lögregluþjónar höfðuðu gegn honum vegna myndbanda sem hann dreifði af þeim og texta sem hann samdi um þá. Getty Rapparinn Joseph Edgar Foreman, betur þekktur sem Afroman, hafði betur gegn sjö lögregluþjónum sem höfðuðu meiðyrðamál gegn honum vegna myndefnis sem hann birti af þeim í tónlistarmyndbandi við lagið „Lemon Pound Cake“ og textum af samnefndri plötu. Afroman hæddist að þeim með myndefni úr öryggismyndavélum af því þegar þeir gerðu rassíu á heimili hans, söng svo um að hafa sofið hjá eiginkonu eins lögregluþjónsins og rappaði um munnmök annars þeirra.
Breska ríkisútvarpið og fjöldi miðla vestanhafs hefur fjallað um málið. Afroman hljómar eflaust kunnulega í eyrum margra, hann hefur verið afkastamikill frá því hann hóf ferill sinn fyrir þrjátíu árum síðan en er þekktastur fyrir lagið „Because I Got High“ af samnefndri plötu sem kom út 2001. Lögreglan í Adams-sýslu í Ohio gerði rassíu á heimili Foreman í bænum Winchester í ágúst 2022 vegna gruns um mannrán og eiturlyfjasölu. Hins vegar fundust engin ummerki um glæpsamlega starfsemi og voru engar ákærur lagðar fram í kjölfarið. Afroman er þekktastur fyrir jónureykingarlag sitt.Getty Foreman sagði lögregluna hafa eyðilagt hurð hans, öryggishlið og öryggiskefið á staðnum sem hefði kostað rúmlega tuttugu þúsund dali (um 2,5 milljónir íslenskra króna) að gera við. Jafnframt hefðu þeir handlagt fimm þúsund dali í seðlum og að um 400 dali hefði vantað þegar hann fékk peninginn til baka. Við rannsókn á störfum lögreglunnar reyndist það þó ekki rétt, talning á peningunum hefði verið röng. Foreman greindi frá málinu á samfélagsmiðlum sínum og gagnrýndi lögregluna harðlega vegna framgöngunnar. Ekki nóg með það heldur gaf hann út plötuna Lemon Pound Cake, sem vísaði í sítrónuköku sem þeir hefðu séð heima hjá honum, með lögum á borð við „Why You Disconnecting My Video Camera,“ „Will You Help Me Repair My Door“ og „Lemon Pound Cake“. Hann gaf síðan út tónlistarmyndbönd við þau tvö síðastnefndu og notaði þar myndefni af lögregluþjónunum á heimili hans. Níu milljónir hafa horft á myndbandið við „Will You Help Me Repair My Door“ og rúmlega þrjár á „Lemon Pound Cake“ á Youtube. Hann gaf síðan út fleiri lög sem beindust beint að lögregluþjónunum: „Randy Walters Is a Son of a Bitch“ þar sem hann gerði að því skóna að hann hefði sofið hjá eiginkonu Walters og „Licc'em Low Lisa“ þar sem hann rappaði um kynferðislega virkni og munnmök lögreglukonunnar Lisu Phillips. Sóttust eftir fjórum milljónum dala vegna skaðans Lögregluþjónarnir fengu á endanum nóg af hegðun Foreman og stefndu honum í meiðyrðamáli vegna myndbandanna og texta laganna og sóttust þar eftir fjórum milljónum Bandaríkja (tæplega hálfum milljarði íslenskra króna). Lögregluþjónarnir sögðust hafa mátt þola áreitni vegna myndbanna, þeim hefðu borist líflátshótanir og orðspor þeirra hefði borið skaða vegna þess. Jafnframt töldu þeir Foreman hafa hagnast ólöglega á persónum þeirra með myndefninu. Afroman mætti í fánalitunum í dómsalinn. Foreman mætti í dómsal í vikunni klæddur í jakkaföt í fánalitum bandaríska fánans og varði verk sín á grunni fyrsta viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar sem kveður meðal annars á um að óhemilt sé að skerða tjáningarfrelsi fólks. Hann hefði gefið út disslögin til að standa straum af kostnaði vegna skemmda lögregluþjónanna. Rassían hefði jafnframt valdið tíu og tólf ára börnum hans sálrænum skaða. „Rassían voru mistök. Allt þetta er þeim að kenna. Ef þeir hefðu ekki brotist inn til mín, hefði ekki verið nein lögsókn. Ég hefði ekki einu sinni vitað nöfn þeirra. Þeir væru ekki á öryggismyndavélunum mínum og það væru engin lög,“ sagði hann jafnframt. „Ég hef verið með þessari konu síðan í grunnskóla“ Einn angi málsins sem vakti hvað mesta athygli var vitnisburður lögregluþjónsins Randolph L. Walters Jr. fyrir dómara. Sagði hann að texti Afroman og myndefnið hefðu skaðað hann persónulega, sérstaklega yfirlýsingar rapparans um að hann hefði sofið hjá eiginkonu Walters. Tveimur dögum fyrir réttarhöldin gaf Afroman út lagið “Randy Walters is a son of a bitch” þar sem hann syngur „Randy Walters is a son of a bitch/That’s why I fucked his wife and got filthy rich“ eða „Randy Walters er tíkarsonur/Þess vegna svaf ég hjá konu hans og varð viðbjóðslega ríkur“. Walters kom fyrir dómarann í gær og lýsti þeim andlega tolli sem hefði fylgt því að vera nefndur á nafn í lagi Afromannsins en í myndbandi við lagið má sjá myndir af lögreglumanninum og eiginkonu hans. „Það hefur valdið gríðarlegum sársauka í mínu lífi,“ sagði Walters um áhrif lagsins á hann persónulega. Þegar dómarinn spurði hann hvort lagið hefði málað upp ranga mynd af honum svaraði Walters: „Já, um að konan mína hafi haldað framhjá mér með [Afroman].“ Þegar Walters var spurður hvort fólk gæti raunverulega haldið að kona hans hefði sofið hjá Afroman svaraði hann: „Ég veit það ekki.“ Gengið var harðar á lögregluþjóninn og hann spurður hvort hann trúði því persónulega að kona hans hefði verið honum ótrú. „Ætlarðu að fara þangað?“ svaraði Walters. „Ég hef verið með þessari konu síðan í grunnskóla, ég ætla að vona ekki. En þú veist að um leið og einhver setur það í loftið sér til skemmtunar þá er það þarna úti og það er vandamál.“ Á öðrum tímapunkti í réttarhöldunum bar lögreglukonan Lisa Phillips vitnisburð í málinu. Afroman gaf út lagið „Licc'Em Low Lisa“ um hana og söng þar um hvernig hún nyti þess að veita munnmök, þar á meðal eiginkonu Foreman. „Lick 'em low Lisa/She raided my house (She raided my house)/She disconnect my cameras (Cameras)/Then she went down on my spouse (What the fuck)“ Í myndbandi við lagið má sjá leikkonu leika Phillips og elta Afroman á röndum. Í texta lagsins heldur Afroman því fram að hún hefði viljandi slökkt á öryggiskerfi hans og stolið af honum pening. Myndbandið var spilað í dómssalnum og grét Phillips á meðan það spilaðist. Lögmaður lögregluþjónanna, Robert Klingler, sagði Foreman hafa logið um þessa „sjö hugrökku aðstoðarlögreglustjóra (e. deputy sheriffs)“ síðastliðin þrjú ár. „Jafnvel þó einhver geri eitthvað sem skaðar þig, eitthvað sem þér finnst rangt, eins og að framkvæma húsleit sem þér finnst ósanngjörn ... þá réttlætir það ekki að ljúga viljandi til að skaða fólk,“ sagði hann. Á móti sagði David Osborne, lögmaður Foreman, að engin skynsöm manneskja myndi halda því fram að ekki mætti gagnrýna lögregluna eða uppnefna fulltrúa hennar. Dómarinn dæmdi svo að lokum Foreman í vil og fagnaði hann vel og innilega. „Okkur tókst það, Ameríka! Já, okkur tókst það! Tjáningarfrelsi!“ hrópaði hinn 51 árs gamli Foreman fyrir utan dómshúsið.
Bandaríkin Tónlist Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Sjá meira