Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðsstjóra Valur Páll Eiríksson skrifar 20. mars 2026 10:00 Stroll (fyrir miðju) leitar liðsstjóra fyrir Aston Martin og hefur fundað með tveimur fyrrum Red Bull-starfsmönnum. Samsett/Getty Lið Aston Martin í Formúlu 1-kappakstrinum hefur átt í miklum vandræðum í upphafi yfirstandandi tímabils og leitar nýs liðsstjóra (e. team principal). Stjórnendur eru sagðir hafa reynt við stjóra Audi sem og fyrrum yfirmann Red Bull. Sá fyrrnefndi sé líklegri til að taka við stjórnartaumunum.
Bíll Aston Martin er sá eini með vél frá Honda og illa hefur tekist til að hanna bíl sem fellur að sögulega breyttri reglugerð. Aldrei áður hafa Formúlu 1 bílar tekið svo miklum breytingum á milli leiktíða. Afraksturinn hjá Aston Martin hefur verið svo slæmur að bíllinn komst vart neitt út á braut á æfingum í aðdraganda tímabils og hvorugum ökuþóranna, Fernando Alonso og Lance Stroll, hefur tekist að koma í mark í fyrstu tveimur keppnunum í Melbourne og Sjanghaí. Þeir félagar hafa líkt keyrslunni við skjálftavakt þar sem bíllinn hristist svo mikið. Alonso sagðist fyrir leiktíðina óttast taugaskaða af því að keyra bíl Aston Martin. Bíllinn er þó ekki slæmur vegna skorts á vinnu og fjármagni. Adrian Newey, sem er talinn besti Formúlu bílahönnuður heims, var gert gylliboð sem hann gat ekki hafnað er hann gekk í raðir Aston Martin. Hann hefur unnið að hönnun bílsins og samhliða því starfað sem liðsstjóri. Lawrence Stroll, eigandi Aston Martin-liðsins, leitar nú logandi ljósi að nýjum liðsstjóra svo Newey geti einbeitt sér alfarið að því sem hann er bestur í, hönnun bílsins. Stroll er sagður hafa átt fund með Christian Horner, sem náði gríðargóðum árangri á áralöngum ferli sem liðsstjóri Red Bull. Horner vann sex heimsmeistaratitla með liðinu á árunum 2010 til 2023 en var sagt upp um mitt síðasta leiktíð vegna meintrar óviðeigandi hegðunar, auk samskiptaörðugleika innan liðsins og slaks árangurs. Newey er sagður andsnúinn ráðningu Horners og ólíklegt þykir að hann taki við. Stroll hafi því næst snúið sér að öðrum Breta, Jonathan Wheatley. Sá tók við nýju liði Audi fyrir aðeins ári síðan en er sagður heillast af verkefninu hjá Aston Martin. Þá sér í lagi því að Aston Martin er með höfuðstöðvar í heimalandi hans á meðan Audi er með starfsstöðvar í Sviss. Wheatley er búsettur skammt frá höfuðstöðvum Aston Martin í nánd við Silverstone í Bretlandi. Wheatley gerði vel með Audi-liðið í fyrra (þegar það hét Sauber) en sú staðreynd að hann er með langtímasamning við Audi gæti gert Aston Martin erfitt fyrir, eða í það minnsta kostnaðarsamt, að lokka Wheatley yfir. Newey er í það minnsta sagður spenntari fyrir kostinum að starfa með Wheatley heldur en Horner. Þeir Newey og Wheatley unnu saman hjá Red Bull í tvo áratugi. Ýmsar heimildir segja aðeins tímaspursmál að Wheatley færi sig yfir til Aston Martin en Audi reyni á móti að neyða hann til að klára sinn samning. Hvorki Audi né Aston Martin hafa viljað tjá sig opinberlega um málið né Wheatley sjálfur.
Akstursíþróttir Mest lesið Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold Fótbolti Fleiri fréttir Í tómu tjóni og leita logandi ljósi að liðsstjóra Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Ítalinn ungi sótti sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Russell sakar Ferrari um eigingirni Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira