Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. mars 2026 13:55 Kílómetrastaða rúmlega 241 þúsund farartækja var skráð í janúar. Vísir Í langflestum tilvikum hafa eigendur bíla fengið rétta bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds í samræmi við áætlaðan meðalakstur en ágallar í hugbúnaði leiddi til þess að afmarkaður hópur fékk ekki rétta greiðsluseðla.
Lög um kílómetragjald tóku gildi um áramótin og í kjölfar þess að fyrsti greiðsluseðilinn barst í heimabanka landsmanna bárust fréttastofu ábendingar um háa greiðsluseðla. Í skriflegu svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu segir að Skattinum hafi alls borist um sjö þúsund skrifleg erindi frá áramótum auk erinda símleiðis. Vert er að taka fram að skriflegu erindin geta verið almennar fyrirspurnir, sértækari erindi, beiðnir um leiðréttingar og kvartanir. Aðspurð hver helstu vandamál og áskoranir við innleiðingu kílómetragjaldsins segir í svarinu að í langflestum tilvikum hafi gjaldskyldir aðilar fengið rétta bráðabirgðagreiðslu. Hins vegar komu í ljós við síðustu úrvinnslu gjaldsins hjá Skattinum ákveðnir ágallar í hugbúnaðinum. Það leiddi til þess að afmarkaður hópur fékk ekki rétta greiðsluseðla en Skatturinn hefur þegar unnið að lagæfringum í samstarfi við hugbúnaðarsérfræðinga. „Þá eru dæmi um að kílómetrastaða ökutækis hafi ekki verið rétt skráð hjá þriðja aðila, svo sem á skoðunarstöð við aðalskoðun ökutækis. Einnig hafa gjaldskyldir aðilar í sumum tilvikum ekki skráð rétta kílómetrastöðu á Ísland.is, sem síðan hefur þurft að leiðrétta,“ segir í svarinu. Að lokum hafa komið upp tilfelli þar sem skráningar í Ökutækjaskrá hafa ekki verið uppfærðar með fullnægjandi hætti, til að mynda upplýsingar um notkunarflokk, skráningarflokk eða afskráningu tiltekinna ökutækja. Áður en fyrsti greiðsluseðillinn barst voru eigendur faratækjanna beðnir um að skrá kílómetrastöðu farartækisins til að fá sem nákvæmastan reikning. Alls voru um 214.300 sem skráðu kílómetrastöðuna í janúar og síðan 107.800 í febrúar.
Kílómetragjald Neytendur Skattar, tollar og gjöld Bílar Samgöngur Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent