Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. mars 2026 14:16 La Datcha er í eigu fyrrverandi milljarðamærings. Getty Snekkja í eigu skattsvikara og fyrrverandi milljarðamærings frá Rússlandi sigldi inn Eyjafjörðinn nú í morgun. Ekki liggur fyrir hvort eigandinn sé um borð.
Um er að ræða 77 metra langa snekkju á sex hæðum sem rýmir tólf manns. Á henni er þyrlupallur og um borð eru tveir snjósleðar og fjórar sæþotur. Á vefsíðu Marine Traffic má sjá að snekkjan sigldi frá Gíbraltar til Íslands. Hún er í eigu Oleg Tinkov, Rússa sem var áður milljarðamæringur. Oleg, sem er 59 ára gamall, fæddist í Leninsk-Kuznetsky sem er í suðvesturhluta Síberíu. Faðir hans starfaði sem námuverkamaður og móðir hans var saumakona. Hann stofnaði fjölda fyrirtækja, til að mynda tónlistarútgáfu, tónlistarverslanir og fyrirtæki sem seldi frosnar matvörur og varð afar vinsælt. Hann seldi síðan öll fyrirtækin og stofnaði Tinkoff-banka árið 2006, fyrsta rússneska bankans sem er einungis á netinu. Rekstur bankans gerði hann að milljarðamæringi og árið 2021 var hann talinn vera 2,3 milljarða dollara virði eða 285 milljarðara íslenskra króna. Tinkev, að mati Forbes, er ekki talinn vera svokallaðir ólígarki þar sem hann varð ekki auðugur vegna samstarfs við rússnesk stjórnvöld. Snekkjunni var siglt inn í fjörðinn í dag.Vísir/Kolbeinn Tumi Árið 2019 var hann fundinn sekur í Bandaríkjunum um að hafa skilað inn fölsuðu skattframtali og reynt að komast hjá því að greiða 240 milljónir dollara í skatta. Tinkov fékk bandarískan ríkisborgararétt árið 1996 og skilaði inn skattframtölunum sínum þar. Hann var handtekinn í Lundúnum árið 2020 og vildu Bandaríkjamenn fá hann framseldan en þar sem hann hafði nýlega greinst með hvítblæði sagðist hann vera of veikur til að ferðast. Árið 2021 játaði hann sök í einum ákærulið og þurfti að greiða rúmlega fimm hundruð milljóna dollara sekt, rúmlega 62 milljarða króna. Þá er hann ekki lengur bandarískur ríkisborgari. Tinkov hefur gagnrýnt Vladímír Pútín Rússlandsforseta og býr núna í Sviss. Hann hefur sérstaklega gagnrýnt ákvörðun Pútíns um að ráðast inn í Úkraínu og gaf upp rússneska ríkisborgarréttinn sinn í kjölfarið. Í byrjun janúar birti hann færslu á Instagram og segir snekkjuna verða á Íslandi í eina viku, frá 31. mars til 6. apríl. „Vinir, könnuðir, skíðafólk, snjóbrettakappar og aðrir klárir með góða sál - ég er skyndilega með lausa viku á Íslandi frá 31. mars til 6. apríl. Einstök upplifun á snekkju,“ skrifar hann í færslunni en fólki stendur til boða að leigja snekkjuna. View this post on Instagram A post shared by Oleg Tinkov (@olegtinkov) Vert er að taka fram að ef litið er á auð Tinkov má gera ráð fyrir að hann eigi meira en milljarð íslenskra króna, hins vegar kemur nafn hans ekki fram á lista Forbes yfir milljarðamæringa þar sem mælieiningin eru Bandaríkjadollarar.
Akureyri Rússland Erlend sakamál Bandaríkin Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira