Körfubolti

Ár­mann fékk skell í kveðju­gjöf

Sindri Sverrisson skrifar
Jónína Þórdís Karlsdóttir og stöllur í Ármanni kveðja nú Bónus-deildina eftir langþráða eins árs dvöl félagsins.
Jónína Þórdís Karlsdóttir og stöllur í Ármanni kveðja nú Bónus-deildina eftir langþráða eins árs dvöl félagsins. vísir/Anton

Ármann spilaði kveðjuleik sinn í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld og tapaði honum stórt gegn Tindastóli á Sauðárkróki, 95-69.

Ljóst varð rétt fyrir leik að Ármenningar gætu ekki lengur bjargað sér frá falli, eftir að Hamar/Þór vann frábæran sigur gegn Keflavík í Þorlákshöfn.

Þetta var jafnframt síðasti leikur Ármanns þar sem að liðið er það eina sem ekki spilar í lokaumferðinni á miðvikudaginn. Nýliðarnir enduðu með sex stig í neðsta sæti.

Tindastóll er hins vegar með 16 stig og mun enda í 8. sæti deildarinnar, og því spila við deildarmeistarana í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Fyrst spilar liðið þó við Hamar/Þór í lokaumferðinni á miðvikudaginn.

Madison Anne Sutton var stigahæst hjá Tindastóli í kvöld með 28 stig og Marta Hermida skoraði 24. Sutton var auk þess með hiel 16 fráköst. Roselis Silva skoraði 5 stig en gaf heilar 15 stoðsendingar.

Hjá Ármenningum endaði Dzana Crnac stigahæst með 15 stig og Sylvía Rún Hálfdanardóttir skoraði 12.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×