Gular viðvaranir aftur á kreik Jón Þór Stefánsson skrifar 22. mars 2026 07:44 Svona er viðvaranakort Veðurstofunnar. Gular veðurviðvaranir tóku gildi klukkan sjö nú í morgun í þremur landshlutum: Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum og á Suðausturlandi. Þær verða í gildi til hádegis.
Ástandinunu í tveimur fyrstnefndu landshlutunum er lýst sem „norðan- og norðvestanhríð“, en „vestan- og norðvestanhríð“ í þeim síðastnefnda. Samgöngutruflanir eru sagðar líklegar í öllum þessum landshlutum. „Nú þegar þetta er skrifað eldsnemma á sunnudagsmorgni er djúp og kröpp lægð skammt austur af landinu. Hún veldur norðan hvassviðri eða stormi með snjókomu á austanverðu landinu. Lægðin fer hratt til norðausturs og því skánar veður nokkuð hratt á þessum slóðum þegar kemur fram á daginn, eftir hádegi ætti að vera úrkomulítið og verulega dregið úr vindi. Ferðalangar ættu þó að leita sér upplýsinga um ástand vega áður en lagt er af stað. Vestan megin á landinu er útlit fyrir vestlæga átt í dag með éljum. Frost yfirleitt á bilinu 0 til 5 stig,“ segir í textaspá Veðurstofunnar. Þar segir að á morgun nálgist næsta lægð úr suðri.„Þá gengur í hvassa austanátt með snjókomu, jafnvel sums staðar stormur, einkum til fjalla. Það hvessir fyrst á sunnanverðu landinu, en veðrið færist síðar einnig yfir í aðra landshluta. Síðdegis er gert ráð fyrir að hiti hafi farið vel yfir frostmark nærri suðurströndinni og þá má búast við að úrkoman verði á formi rigningar eða slyddu þar. Spár gera síðan ráð fyrir að lægð morgundagsins færi sig fyrir austan land á þriðjudag og valdi þá norðanátt, sem verður allhvöss eða jafnvel hvöss. Með fylgir snjókoma eða él, en sunnan heiða ætti að verða úrkomulaust að mestu. Búast má við að kólni með norðanáttinni.“
Veður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira