Messan: Vill að Solskjær taki við Spurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2026 10:30 Ole Gunnar Solskjær var síðast við stjórnvölinn hjá Besiktas í Tyrklandi. Hann stýrði Manchester United, liðinu sem hann lék með stærsta hluta ferilsins, á árunum 2018-21. getty/Charlotte Wilson Albert Brynjar Ingason stakk upp á óvæntu nafni aðspurður hver ætti að taka við Tottenham í þeirri erfiðu stöðu sem liðið er í.
Tottenham tapaði 0-3 fyrir Nottingham Forest á heimavelli í mikilvægum fallslag í gær. Spurs hefur ekki unnið deildarleik á þessu ári og er einu stigi frá fallsæti þegar sjö umferðum er ólokið. Igor Tudor tók við Tottenham af Thomas Frank í síðasta mánuði en Spurs hefur aðeins fengið eitt stig í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Króatans. Sæti hans þykir heitt og margir velta fyrir sér hver gæti tekið við Tottenham og bjargað liðinu frá falli. Kjartan Atli Kjartansson varpaði þeirri spurningu til Alberts í Sunnudagsmessunni í gær og ekki stóð á svari hjá honum. „Ole Gunnar Solskjær,“ sagði Albert sem finnst nauðsynlegt að Tottenham ráði einhvern sem getur fengið menn til að brosa og njóta sín, jafnvel þótt staða liðsins sé erfið. „Maður sá í þessum fyrstu leikjum hjá Tudor að menn voru farnir að hunsa hann og hlusta ekki á skilaboð. Hann er ekki með hópinn með sér og núna þurfa þeir að breyta þessu,“ sagði Aron Jóhannsson. Klippa: Messan - umræða um stjóramál Spurs Hinn 79 ára Harry Redknapp hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Tottenham en hann stýrði liðinu á árunum 2008-12. Albert segir að forráðamenn Spurs gætu gert margt vitlausara en að ráða Redknapp og benti því til stuðnings á ákvörðun Celtic að ráða Martin O'Neill. „Þeir fóru í gæja sem er ekki búinn að þjálfa lengi, þekkir klúbbinn og er stemmningskarl,“ sagði Albert. Næsti leikur Tottenham er ekki fyrr en 12. apríl þegar liðið sækir Sunderland heim. Innslagið úr Messunni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Messan Tengdar fréttir Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Þeir voru vægast sagt ósammála, framherjarnir Aron Jóhannsson og Albert Brynjar Ingason, þegar talið barst að dæmdum og ekki dæmdum vítum í leik Bournemouth og Manchester United. 23. mars 2026 07:02 Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Athygli vakti að Igor Tudor þjálfari Tottenham, sem þykir afar valtur í sessi, skyldi ekki veita viðtöl eftir tapið gegn Nottingham Forest í dag en ástæðan er mun alvarlegri en nokkur fótboltaleikur. 22. mars 2026 22:22 Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Igor Tudor gæti hafa stýrt Tottenham í hinsta sinn í dag, rétt rúmum mánuði eftir að hafa verið ráðinn, eftir að liðið steinlá gegn Nottingham Forest í fallslag á heimavelli, 3-0. 22. mars 2026 16:03 Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira
Skoðaði drykk Alberts eftir umræðu um vítin Þeir voru vægast sagt ósammála, framherjarnir Aron Jóhannsson og Albert Brynjar Ingason, þegar talið barst að dæmdum og ekki dæmdum vítum í leik Bournemouth og Manchester United. 23. mars 2026 07:02
Tilkynnt um andlát pabba strax eftir tapið Athygli vakti að Igor Tudor þjálfari Tottenham, sem þykir afar valtur í sessi, skyldi ekki veita viðtöl eftir tapið gegn Nottingham Forest í dag en ástæðan er mun alvarlegri en nokkur fótboltaleikur. 22. mars 2026 22:22
Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Igor Tudor gæti hafa stýrt Tottenham í hinsta sinn í dag, rétt rúmum mánuði eftir að hafa verið ráðinn, eftir að liðið steinlá gegn Nottingham Forest í fallslag á heimavelli, 3-0. 22. mars 2026 16:03