Guðbjörg hlaut heiðursverðlaun í London Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. mars 2026 09:03 Aurum fjölskyldan lukkuleg í London. Karlotta Kara Karlsdóttir, Karl Jóhann Jóhannsson, Ingibjörg Æsa, Guðbjörg Kr Ingvarsdóttir og Ásgerður Diljá Karlsdóttir. Aðsend Gullsmiðurinn Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir rekur ásamt fjölskyldu sinni skartgripaverslunina Aurum að Bankastræti. Þau ferðuðust öll saman til London fyrr á árinu og unnu þar til virtra verðlauna.
Búðin hefur fyrir löngu fest sig í sess sem ein virtasta skartgripaverslun Íslands en Aurum hlaut nýverið hin virtu ævistarfsverðlaun eða Lifetime Achievement Award 2026 í Bretlandi. Er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt skartgripafyrirtæki hlýtur slík verðlaun. Verðlaunin voru hluti af bresku brúðkaups- og brúðkaupsferðar verðlaunum eða UK Wedding & Honeymoon Awards, sem haldin eru hátíðleg í London á ári hverju. Þau eru veitt einstaklingum og fyrirtækjum innan brúðkaups- og ferðageirans sem hafa skarað fram úr og lagt mikið af mörkum til listgreinarinnar. View this post on Instagram A post shared by Aurum by Guðbjörg (@aurumjewellery) Guðbjörg og eiginmaður hennar Karl Jóhann Jóhannsson fóru út með dætrum sínum þremur og voru þau í skýjunum með viðurkenninguna. Hjónin settu vörumerkið á laggirnar árið 1999 og hefur Guðbjörg hannað skart fyrir stórstjörnur á borð við Katy Perry. „Að hljóta þessi heiðursverðlaun er sérstaklega stór viðurkenning fyrir Aurum, sem hefur í áratugi lagt áherslu á vandað handverk, tímalausa hönnun og persónulega nálgun við viðskiptavini sína,“ segir Guðbjörg og bætir við: „Þessi viðurkenning er okkur afar dýrmæt og táknar mikla viðurkenningu á þeirri ástríðu og vinnu sem hefur verið lögð í Aurum í gegnum árin. Við höfum alltaf haft það að leiðarljósi að skapa skart sem hefur merkingu og endist kynslóðum. Að fá þessa viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi er bæði heiður og hvatning til að halda áfram á sömu braut.“ Glæsileg fjölskylda. Karlotta Kara Karlsdóttir, Karl Jóhann Jóhannsson, Ingibjörg Æsa, Guðbjörg Kr Ingvarsdóttir og Ásgerður Diljá Karlsdóttir.Aðsend Kvöldið var vægast sagt ógleymanlegt hjá fjölskyldunni. „Það var ótrúleg upplifun að fá að standa á sviðinu í London og taka við þessum verðlaunum. Fyrir okkur sem fjölskyldufyrirtæki er þetta ekki aðeins viðurkenning á starfi okkar heldur líka á öllum þeim viðskiptavinum sem hafa treyst okkur til þess að skapa skart fyrir sín stærstu augnablik,“ segir Guðbjörg að lokum. Verðlaunagripurinn.Aðsend Guðbjörg glæsileg á athöfninni.Aðsend
Tíska og hönnun Íslendingar erlendis Mest lesið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Fleiri fréttir Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira