Kallaði skiptingu Foden „góðgerðarskiptingu“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. mars 2026 06:31 Phil Foden fagnar hér sínum átjánda titli með Manchester City. Getty/ Marc Atkins „Það var eins og um „góðgerðarskiptingu“ væri að ræða þegar Phil Foden kom inn á í uppbótartíma í úrslitaleik Manchester City og Arsenal í deildabikarnum,“ segir Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins.
Þegar City var að landa 2-0 sigri á Wembley-leikvanginum á sunnudaginn skipti Pep Guardiola, stjóri liðsins, Foden inn á fyrir Rayan Cherki á 90. mínútu. Frakkinn Cherki, Antoine Semenyo sem keyptur var í janúar, og Savinho hafa allir verið teknir fram yfir Foden í síðustu leikjum og hefur Englendingurinn aðeins byrjað fjóra af síðustu þrettán leikjum City í öllum keppnum. Ekki skorað í tuttugu leikjum Hinn 25 ára gamli leikmaður hefur einnig ekki skorað í síðustu tuttugu leikjum sínum, allt frá 14. desember, en þá hafði hann verið í ágætis formi og skorað sex mörk í fimm leikjum. Foden’s son Ronnie with Liam and Noel Gallagher today at Wembley. 😁🩵 #ManCity pic.twitter.com/wVwSuh4Vta— City HQ (@City_hq) March 22, 2026 Foden hefur nú unnið átján bikara síðan hann braust inn í aðalliðið hjá Manchester City sem unglingur og var valinn í stækkaðan hóp enska landsliðsins fyrir komandi vináttuleiki gegn Úrúgvæ og Japan. Það eru samt spurningamerki um hvort hann komist í lokahópinn fyrir heimsmeistaramótið í sumar en hann kom ekki við sögu í síðari leik sextán liða úrslita Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid í síðustu viku, þar sem City tapaði 5-1 samanlagt. Fannst þetta sorglegt fyrir hann Í þættinum Wayne Rooney Show á BBC sagði fyrrverandi framherji Manchester United: „Mér fannst þetta sorglegt fyrir hann en ekki sorglegt vegna þess að hann er að koma inn á í bikarúrslitaleik,“ „Það var leikur fyrir nokkrum dögum þar sem hann komst ekki einu sinni inn á völlinn. Ef þetta hefði verið Max Dowman sem kæmi inn á í lokin, þá hefði maður hugsað að þetta væri góð reynsla. En að sjá Phil Foden koma inn á í bikarúrslitaleik, það var eins og um góðgerðarskiptingu væri að ræða til að koma honum inn á völlinn,“ sagði Rooney. Ég veit ekki hvað hefur gerst „Ég veit ekki hvað hefur gerst, hann er frábær leikmaður. Það er skrítið að hann komist ekki nálægt liðinu. Það er eins og eitthvað hafi gengið á þarna,“ sagði Rooney. „Mér fannst Foden vera í góðu formi en allt í einu höfum við ekki séð hann fá neinar mínútur. Í fyrsta lagi verður hann ánægður með að þeir hafi unnið bikarinn en frá eigingjörnu sjónarhorni hefði hann viljað vera þarna úti og hafa áhrif. Þetta verður erfitt fyrir hann,“ sagði Rooney. Listen to The Wayne Rooney Show on BBC Sounds - https://t.co/KskI5jph6m— BBC Sport (@BBCSport) March 23, 2026
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira