Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé skrifar 24. mars 2026 08:01 Árið 1987 voru 39 kaupskip skráð á Íslandi. Í dag siglir ekki eitt einasta flutningaskip undir íslenskum fána. Meira en 90% af öllum vöruviðskiptum okkar berast sjóleiðis. Þetta á ekki bara við um neysluvarning, heldur undirstöður íslenskrar matvælaframleiðslu og iðnaðar: Áburður á tún, varahlutir í landbúnaðarvélar, fóður fyrir laxeldi og stál og timbur í byggingar koma hingað með skipum sem öll eru skráð erlendis. Skipaskráningin er ekki aðeins spurning um þjóðarstolt, heldur grundvallaratriði í þjóðaröryggi. Lagaleg óvissa á ófriðartímum Í dag er til almenn skipaskrá á Íslandi en ekki er til staðar virk alþjóðleg skipaskrá og því velja íslensk skipafélög að gera út skip undir fánum annarra ríkja, svo sem Færeyja, Noregs eða Hollands. Það ræðst af skráningu hvaða ríki hefur lögsögu yfir skipinu og komi til neyðarástands, eins og alþjóðlegra átaka, geta fánaríkin kallað skipin til þjónustu í eigin þágu. Í því ástandi stæði Ísland eftir án neinna lagalegra úrræða til að tryggja sínar eigin líflínur. Samningsleiðin: Brú að betri skipaskrá Til lengri tíma litið þarf Ísland að búa yfir sinni eigin samkeppnishæfu skipaskrá og tryggja að nægilega mörg skip séu skráð þar. Þetta er nauðsynlegt til að endurheimta yfirráð yfir flotanum í neyð. Slík skipaskrá þyrfti að byggja á svipaðri umgjörð og þær alþjóðlegu skipaskrár sem nágrannar okkar reka. Það krefst tíma og pólitískrar forgangsröðunar. Í millitíðinni ættum við ekki að sitja aðgerðarlaus með hendur í skauti. Í greiningu sem kom út í dag leggur Varða - hugveita um þjóðaröryggi - til að íslensk stjórnvöld kanni samstarf við siglingamálastofnun Færeyja (FMA) um rekstur íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár. Ísland myndi setja lagaumgjörðina og halda fullum fána- og lögsöguheimildum en fela daglegan rekstur skrárinnar þeirri stofnun sem íslenskar útgerðir þekkja nú þegar og treysta. Þannig gætu skip í íslenskri eigu sem nú eru skráð í færeysku alþjóðlegu skipaskránni flutt sig á íslenskan fána án þess að þjónustan breyttist, og Ísland þar með endurheimt lögsögu yfir skipunum sem sinna flutningum til landsins. Viðnámsþróttur er val Viðnámsþróttur samfélagsins veltur á því að við höfum yfirráð yfir okkar eigin aðföngum. Í heimi aukinnar óvissu er nauðsynlegt að Ísland endurheimti yfirráð yfir flutningum til landsins. Aðgerðarleysi er ekki valkostur þegar þjóðaröryggi er undir. Við þurfum bæði skammtímalausnir í samstarfi við nágranna okkar og langtímasýn um öfluga íslenska skipaskrá. Spurningin er einföld: Ætlum við að halda áfram að treysta alfarið á góðvild annarra eða ætlum við að tryggja okkar eigin líflínur? Höfundur er greinandi hjá Vörðu - hugveitu um þjóðaröryggi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Öryggis- og varnarmál Skipaflutningar Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar