Sakaður um að setja bosnískan leikmann á bekkinn til að hjálpa Wales Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. mars 2026 07:31 Steve Cooper, fyrrverandi knattspyrnustjóri Swansea City, Nottingham Forest og Leicester City, tók við Brøndby í Danmörku í september á síðasta ári. getty/Michael Regan Sergej Barbarez, þjálfari bosníska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur sakað þjálfara Brøndby í Danmörku, Steve Cooper, um að hafa sett bosnískan landsliðsmann á bekkinn til að hjálpa Wales sem mætir Bosníu í umspili um sæti á HM síðar í vikunni.
Á blaðamannafundi í gær sagði Barbarez að Cooper hefði ekki notað Benjamin Tahirovic í tveimur síðustu leikjum Brøndby til að hjálpa velska landsliðinu fyrir leikinn mikilvæga gegn Bosníu. „Benjo sagði mér hluti sem er erfitt að trúa. Það hefur með þjóðerni þjálfarans að gera,“ sagði Barbarez. „Þegar þjálfarinn óskar þér en ekki landsliðinu þínu góðs gengis ferðu að hugsa. Hann sagði honum að allt yrði eðlilegt eftir landsleikjahléið. Ég er ekki þannig. Ég elska og virði íþróttina og keppnina meira.“ Benjamin Tahirovic og félagar hans í bosníska landsliðinu eru tveimur sigrum frá því að komast á HM.getty/Jonathan Moscrop Talsmaður Brøndby hafnar ásökunum Barbarez og segir landsliðsþjálfarann seilast full langt með þeim. Hann benti jafnframt á að varla væru margir stuðningsmenn Wales í Brøndby. Wales og Bosnía eigast við á heimavelli Cardiff City á fimmtudaginn. Sigurvegarinn mætir annað hvort Ítalíu eða Norður-Írlandi í hreinum úrslitaleik um sæti á HM 31. mars. Tahirovic, sem er 23 ára miðjumaður, kom til Brøndby frá Ajax í fyrra. Hann hefur leikið 24 landsleiki fyrir Bosníu og skorað tvö mörk.
Danski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Leik lokið: Álftanes - Höttur 111-77 | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira