Útgönguspá: Ríkisstjórninni refsað en Løkke í lykilstöðu Agnar Már Másson skrifar 24. mars 2026 19:08 Metta Frederiksen er forstirsráðherra Danmerkur og formaður Sósíaldemókrataflokksins. Dönsku ríkisstjórnarflokkarnir, allra helst Sósíaldemókrataflokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra, tapa fylgi í þingkosningum í kvöld samkvæmt útgönguspám. Samt er Lars Løkke Rasmussen úr Moderaterne í lykilstöðu hvað varðar stjórnarmyndun, þar sem hvorki rauða né bláa blokkin fær hreinan meirihluta.
Kjörstöðum var lokað klukkan 19 að íslenskum tíma. Útgönguspár eru kannanir sem framkvæmdar eru eftir að fólk hefur greitt atkvæði. Sögulega séð hafa þær gefið nokkuð góða mynd af þeirri niðurstöðu sem kemur úr kjörkössunum. Í útgönguspá sem DR greinir frá fær Sósíaldemókrataflokkurinn 19,2 prósent atkvæða og tapar þannig átta prósentustigum milli kosninga. Venstre hlýtur 9,3 prósent samkvæmt spám og flokkurinn tapar þá fjórum prósentustigum. Er þetta versta niðurstaða Venstre frá stofnun flokksins. Lars Lokke Rasmussen er utanríkisráðherra Danmerkur og formaður Moderaterne.EPA Moderaterne er sá ríkisstjórnarflokkur sem tapar minnstu fylgi en sá flokkur fær 8,2 prósenta fylgi í spánni og tapar prósentustigi milli kosninga. Flokkurinn myndi þannig fá 14 þingsæti. Samkvæmt spánni nær hvorki rauða né bláa blokkin hreinum meirihluta og Moderaterne er eini flokkurinn sem tilheyrir hvorugri blokkinni. Því er hann talinn hafa lyklavöldin við hugsanlega ríkisstjórnarmyndun. Aftur á móti er einnig ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir þrír eru ekki lengur með meirihluta samkvæmt spánni. Sosialistiske folkeparti bætir verulega við sig og mælist næststærstur með 11,4 prósenta fylgi. Liberal alliancen fær auk þess 10,5 prósent í útgönguspánni. Danmarks demokraterne fá þá 7,8 prósent í könnuninni en Dansk folkeparti mælist með 7,5 prósent. Íhaldsflokkurinn fær 7,1 prósenta fylgi og Enhedslisten 6,4 prósenta fylgi. Radikale fá 6 prósenta fylgi og Alternativet 4,1 prósenta fylgi. Að lokum fær Borgernes parti 2,1 prósenta fylgi í útgönguspánni.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira