OpenAI kippir Sora úr sambandi Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2026 22:59 OpenAI fer væntanlega á markað seinna á þessu ári og virðast forsvarsmenn fyrirtækisins vera að taka til í rekstrinum. AP/Michael Dwyer Sam Altman, forstjóri OpenAI, tilkynnti starfsmönnum í dag að fyrirtækið væri að hætta með Sora-myndbandaþjónustuna. Það er þjónusta sem hefur gert notendum kleift að búa til nokkuð raunveruleg en stutt myndbönd með aðstoð gervigreindar. Ákvörðunin er liður í nokkuð umfangsmiklum breytingum á rekstri gervigreindarfyrirtækisins.
Þær breytingar fela meðal annars í sér að einbeita rekstri fyrirtækisins að vörum og þjónustu sem ætlað er að auka framleiðni og geta verið notaðar af bæði fyrirtækjum og einstaklingum, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Þar er um að ræða kerfi sem notendur geta notað til að auka skilvirkni, greina gögn og kóða fyrir sig, svo eitthvað sé nefnt. Með því vilja forsvarsmenn fyrirtækisins fara í meiri samkeppni við fyrirtækið Anthropic, sem hefur náð miklum árangri á sviði framleiðni með þjónustunni Claude. Sex mánuðir eru síðan smáforritið Sora var gert aðgengilegt notendum og hefur það notið töluverðra vinsælda en þó sérstaklega í upphafi. Samkvæmt frétt CNBC kostaði þjónustan þó OpenAI mikla peninga en innan veggja fyrirtækisins er unnið að því að draga úr kostnaði í aðdraganda væntanlegs hlutafjáruppboðs seinna á þessu ári. We’re saying goodbye to the Sora app. To everyone who created with Sora, shared it, and built community around it: thank you. What you made with Sora mattered, and we know this news is disappointing.We’ll share more soon, including timelines for the app and API and details on…— Sora (@soraofficialapp) March 24, 2026 WSJ segir þar að auki að starfsmenn OpenAI hafi verið hissa á því hve stórum hluta þeirrar reiknigetu sem fyrirtækið hefur aðgang að var varið í Sora, þar sem fátt benti til þess að mikil eftirspurn hafi verið eftir þjónustunni. Nokkrar vörur og þjónustur hafa verið lagðar til hliðar að undanförnu og þá að miklu leyti vegna takmarkaðrar reiknigetu og skorts á gagnaverum. Fyrirtækið er metið á 730 milljarða dala. Það samsvarar um 90,9 billjónum króna (tólf núll). Altman sagði starfsmönnum að þeir sem unnið hefðu að Sora myndu snúa sér að öðrum verkefnum sem gætu reynst hagkvæmari. Nefndi hann sérstaklega stjórnun vélmenna. Ákvörðunin felur í sér að Disney mun ekki fjárfesta milljarði dala í OpenAI en í staðinn átt gervigreindarfyrirtækið að fá leyfi til að gera notendum Sora kleift að nota persónur Disney í myndböndum.
Gervigreind Tengdar fréttir Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39 Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum. 8. mars 2026 14:24 Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna. 27. febrúar 2026 15:13 Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google Sam Altman, forstjóri OpenAI, fyrirtækisins sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið sagði starfsmönnum sínum í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins væru að hringja viðvörunarbjöllum þar. Búið væri að lýsa yfir neyðarástandi og er það vegna aukinnar samkeppni frá öðrum fyrirtækjum á sviði gervigreindar, sérstaklega vegna samkeppni frá Google. 2. desember 2025 21:40 Mest lesið Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira
Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Netflix hefur fest kaup á fyrirtækinu InterPositive, kvikmyndafyrirtæki stofnað af Hollywood-leikaranum Ben Affleck. Fyrirtækið framleiðir gervigreindartól fyrir kvikmyndagerð. 8. mars 2026 16:39
Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Vélbúnaðarstjóri OpenAI, sem á gervigreindarmállíkanið ChatGPT, hefur sagt af sér í kjölfar þess að fyrirtækið komst að samningi við Pentagon um notkun þeirra á gervigreindinni. Hún telur fyrirhugaða notkun varhugaverða þar sem Pentagon hafi heimild til að nýta gervigreind til að fylgjast með almennum borgurum. 8. mars 2026 14:24
Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic segist ekki geta með góðri samvisku gefið Pentagon ótakmarkaðan aðgang að tækni sinni. Í nýjum samningi sem þeim var boðinn við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna höfðu stjórnvöld meðal annars heimild fyrir því að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna. 27. febrúar 2026 15:13
Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google Sam Altman, forstjóri OpenAI, fyrirtækisins sem er hvað þekktast fyrir ChatGPT mállíkanið sagði starfsmönnum sínum í gær að forsvarsmenn fyrirtækisins væru að hringja viðvörunarbjöllum þar. Búið væri að lýsa yfir neyðarástandi og er það vegna aukinnar samkeppni frá öðrum fyrirtækjum á sviði gervigreindar, sérstaklega vegna samkeppni frá Google. 2. desember 2025 21:40