Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Armar 30. mars 2026 09:07 Armar er í dag stærsta leigufyrirtæki í byggingariðnaði á Íslandi. „Frá því að vera með einn glussakrana árið 1999 hefur fyrirtækið vaxið í að reka flota sem telur um 1.000 vélar, allt frá vinnulyftum og lyfturum yfir í rafstöðvar og sérhæfðar vélar fyrir byggingar- og framkvæmdaaðila,“ Ævar Þór Ólafsson hjá Örmum. Mynd/Hulda Margrét. Það er fátt sem vekur jafn mikla athygli í íslensku borgarlandslagi og stórar framkvæmdir. Ný hús rísa, vegir teygja sig lengra og innviðir styrkjast. Á bak við þetta allt leynist heill heimur tækja, véla og sérfræðinga sem halda hlutunum gangandi. Þar er fyrirtækið Armar í lykilhlutverki. „
Armar er í dag stærsta leigufyrirtæki í byggingariðnaði á Íslandi og hefur byggt upp sterka stöðu með fjölbreyttum tækjakosti og þjónustu sem nær um allt land,“ segir Ævar Þór Ólafsson hjá Örmum. „Frá því að vera með einn glussakrana árið 1999 hefur fyrirtækið vaxið í að reka flota sem telur um 1.000 vélar, allt frá vinnulyftum og lyfturum yfir í rafstöðvar og sérhæfðar vélar fyrir byggingar- og framkvæmdaaðila.“ Frá einum krana í heilan vélagarð Saga Arma er í raun klassískt dæmi um íslenskan vöxt byggðan á þörf markaðarins. Þegar fyrirtækið hóf starfsemi voru verkefnin einföld og vélakosturinn takmarkaður. En eftir því sem framkvæmdir jukust og kröfurnar urðu meiri, fylgdi Armar eftir með fjárfestingum og þróun. Armar er í dag stærsta leigufyrirtæki í byggingariðnaði á Íslandi og hefur byggt upp sterka stöðu með fjölbreyttum tækjakosti og þjónustu sem nær um allt land. Þannig voru á árunum 2008-2013 stofnuð þrjú systurfélög. Fyrst Armar Mót og kranar árið 2008 sem er í dag leiðandi í útleigu og sölu á búnaði til bygginga- og steypuframkvæmda. Næst bættist við Armar Jarðvélar árið 2010 sem leigir út stórar beltagröfur, hjólagröfur, jarðýtur, valtara og búkollur. Árið 2013 stækkaði Armar enn frekar þjónustusvið sitt með því að bjóða einnig bíla til leigu undir merkjum Armar Bílar. Starfsemi félagsins beinist þó ekki að ferðaþjónustu en flestir bílarnir eru sérútbúnir til að nýtast verktökum við störf um allt land, jafnvel þar sem aðstæður eru erfiðar. „Þessi þrjú félög, ásamt Örmum Vinnulyftum, mynda því öfluga heild þar sem viðskiptavinir geta fengið nánast allt sem þarf fyrir framkvæmd á einum stað. Hvort sem um er að ræða lyftu fyrir málningarverkefni, gröfu fyrir jarðvinnu eða sérútbúinn bíl til að komast á afskekktar slóðir, þá er líklegt að Armar hafi lausnina,“ bætir Ævar við. „Þjónustan, ekki spurning“ En hvað er það sem raunverulega aðgreinir Arma frá öðrum? Aðspurður segir Ævar að svarið sé einfalt: „Þjónustan, ekki spurning. Frá pöntun til skila.“ Viðskiptavinir geta pantað vélar annaðhvort í gegnum vefinn eða með símtali þar sem þeir fá jafnframt ráðleggingar um hvaða vél hentar best. Þetta er kannski lykilatriði sem ekki má vanmeta því að velja rétta vél getur sparað bæði tíma og peninga. Að pöntun lokinni tekur við skilvirkt ferli þar sem fjórir útkeyrslubílar sjá um afhendingar. Þó að best sé að panta með fyrirvara segir Ævar að fyrirtækið sé þekkt fyrir að bregðast hratt við þegar eitthvað kemur upp á. Öryggi í forgangi Á undanförnum árum hafa öryggismál orðið sífellt meira áberandi í byggingariðnað og þar hefur Armar fylgt þróuninni eftir. „Fyrirtæki eru farin að leggja miklu meiri áherslu á öryggismál og nota í auknum mæli lyftur og lyftitæki til að koma í veg fyrir hugsanleg líkamstjón, t.d. við fallhættu,“ segir Ævar. Þetta endurspeglast líka í starfsemi Arma. Allar vélar fara reglulega í yfirferð og viðhald og ef eitthvað kemur upp á eru þjónustubílar og sérfræðingar sendir á staðinn. Fyrirtækið rekur einnig sprautuverkstæði og leggur áherslu á að tækjabúnaður sé alltaf í toppstandi. Breitt úrval fyrir ólíkar þarfir Þótt vinnulyftur séu kjarninn í starfseminni hefur vöruúrvalið breikkað mikið. Í dag býður Armar upp á lyftur og lyftara í öllum stærðum en einnig fjölbreytt úrval smærri véla eins og rafstöðvar, hitablásara, rakatæki og öryggisgirðingar. Það þýðir að fyrirtækið þjónar ekki aðeins stórum verktökum heldur einnig minni aðilum og iðnaðarfyrirtækjum sem þurfa sérhæfðan búnað til skemmri tíma. Það skiptir mjög miklu máli að hafa gott og vel þjálfað starfsfólk. Margt starfsfólk okkar er með langan starfsaldur og þekkja vel fyrir hvað fyrirtækið stendur. Fólkið skiptir öllu Þrátt fyrir alla tæknina og vélarnar leggur Ævar áherslu á að stærsti styrkurinn liggi í mannauðinum. „Það skiptir mjög miklu máli að hafa gott og vel þjálfað starfsfólk. Margt starfsfólk okkar er með langan starfsaldur og þekkja vel fyrir hvað fyrirtækið stendur.“ Þessi reynsla og þekking skilar sér beint til viðskiptavina, hvort sem um er að ræða ráðgjöf, þjónustu eða viðhald. „Fyrirtæki eru farin að leggja miklu meiri áherslu á öryggismál og nota í auknum mæli lyftur og lyftitæki til að koma í veg fyrir hugsanleg líkamstjón, t.d. við fallhættu,“ segir Ævar.Mynd/Hulda Margrét. Horft til framtíðar Fram undan eru spennandi tímar í íslenskum byggingariðnaði. Uppbygging innviða, stórar framkvæmdir og áframhaldandi þróun í efnahagslífinu skapa tækifæri og Armar ætlar sér að vera áfram í fremstu röð. Með öflugum vélakosti, víðtækri þjónustu og áherslu á öryggi og fagmennsku hefur fyrirtækið fest sig í sessi sem traustur samstarfsaðili í framkvæmdum um allt land. Og ef eitthvað er víst, þá er það þetta: næst þegar þú sérð byggingarkrana, vinnulyftu eða gröfu á ferðinni, þá eru góðar líkur á að Armar sé á bak við tjöldin að halda hlutunum á lofti.
Byggingariðnaður Mest lesið Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Viðskipti innlent Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Viðskipti erlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Viðskipti innlent Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Viðskipti erlent „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Viðskipti innlent „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ Atvinnulíf Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Neytendur Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl