Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. mars 2026 16:47 Mette Frederiksen er formaður Sósíaldemókrata. EPA Mette Frederiksen, formaður Sósíaldemókrata í Danmörku, hefur fengið umboð frá danska konunginum til að ganga til ríkisstjórnarviðræðna.
Danska ríkisútvarpið greinir frá en þau hafa eftir tilkynningu frá konunginum. Niðurstaðan var sú að flestir völdu Mette Frederiksen, sem gegndi embætti forsætisráðherra síðasta kjörtímabilið. Flokkur Frederiksen hlaut flest atkvæði í kosningunum en í kjölfar þeirra fara formenn allra flokkanna á fund konungs og velja þann sem þeir vilja að fari með umboðið. „Það er nokkuð fast í þessum blokkum. Yfirleitt benda forystumenn ekki á sjálfa sig nema þeir hafi stuðning annarra flokka og þeir benda óhikað á leiðtoga blokkarinnar þvert yfir flokka sem er svolítið öðruvísi en gerist hér hjá okkur,“ sagði Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, í hádegisfréttum Bylgjunnar. Alls voru 84 sem völdu Frederiksen, þingmenn Sósíaldemókrata, SF, Enhedslisten, De Radikale og Alternativet. Það eru allt flokkarnir sem mynda rauðu blokkina. 74 völdu Troels Lund Poulsen, leiðtoga Venstre, en það voru fulltrúar Venstre, Liberal Alliance, Dansk Folkeparti, De Konservative og Danmarksdemokraterne. Allir flokkarnir mynda bláu blokkina. Er spekúlantar spáðu í spilin var ljóst að atkvæði flokks Lars Løkke Rasmussen, leiðtoga Moderaterne, myndu skipta sköpum. Þau fjórtán atkvæði sem flokkurinn hlaut fóru öll til Rasmussen sjálfs. Í ríkisstjórn síðasta kjörtímabils var Frederiksen forsætisráðherra og með Sósíaldemókrötum voru Moderaterne og Venstre. Poulsen hefur þegar gefið út að honum hugnist ekki áframhaldandi ríkisstjórnarsamtarf með flokki Frederiksen.
Þingkosningar í Danmörku Danmörk Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira