Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Kjartan Kjartansson skrifar 26. mars 2026 10:21 Aksel Johannesen, lögmaður Færeyja, boðaði til kosninga snemma. Flokkur hans virðist ætla að tapa fylgi og meirihluti landsstjórnarinnar fallinn. Vísir/EPA Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni.
Kosningum til lögþingsins var flýtt vegna ágreinings innan landsstjórnar Jafnaðarmannaflokks Aksels V. Johannesen lögmanns, Þjóðveldisflokksins og Framsóknar um ýmis mál. Johannesen boðaði til kosninganna rétt áður en Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tilkynnti um skyndikosningar í síðasta mánuði. Núverandi meirihluti í landsstjórninni er fallinn ef marka má skoðanakönnun ríkisfjölmiðilsins KVF frá því fyrr í vikunni. Samkvæmt henni fengju núverandi stjórnarflokkar fjórtán þingsæti. Sautján sæti þarf til að hafa meirihluta á lögþinginu. Fólkaflokkurinn, hægri íhaldsflokkur, mældist stærstur í könnunni með 27,7 prósent fylgi, níu prósentustigum meira en í síðustu kosningum árið 2022. Miðað við það fengi hann níu þingsæti. Heilt 21 prósent svarenda sögðust þó ekki hafa gert upp hug sinn um hvaða flokkur yrði fyrir valinu og tólf prósent þeirra sem höfðu ákveðið sig sögðust ekki viss í sinni sök. Atgervisflótti og öldrun þjóðar Stóru málin í kosningabaráttunni eru nokkuð tilvistarlegs eðlis og leiða af lýðfræðilegri þróun á eyjunum. Líkt og aðrar vestrænar þjóðir eru Færeyingar teknir að reskjast með tilheyrandi álagi á lífeyriskerfi og hagkerfið. Þannig samþykkti lögþingið naumlega að hækka eftirlaunaaldur úr 67 árum í 69 en það mætti harðri mótspyrnu hagsmunaaðila. Á hinum enda rófsins Færeyjar glima einnig við það vandamál að fjörutíu prósent fólks á þrítugsaldri flytur frá eyjanna og einn af hverjum fimm snýr ekki aftur samkvæmt opinberum tölum. Einhverjir frambjóðendur hafa sett það á oddinn að auðvelda ungu fólkið lífið í Færeyjum. Hátt húsnæðisverð sé þrándur í götu þess að ung fólkt nái að koma undir sig fótunum, að því er segir í fréttaskýringu danska ríkisútvarpsins um kosningarnar. Spurningarmerki við Suðureyjargöng Í ljósi alls þessa hefur fyrirhuguð jarðgangaframkvæmd sem á að tengja Suðureyju, syðstu eyju Færeyja við hinar eyjarnar, reynst umdeild. Kostnaðurinn við göngin er áætlaður um fimm milljarðar danskra króna, jafnvirði um 96 milljarða íslenskra króna. Það er um fimmtungur af vergri landsframleiðslu Færeyja. Margir spyrja sig því hvort Færeyingar hafi bolmagn til þess að ráðast í svo metnaðarfullar framkvæmdir. Johannesen lögmaður hefur líkt Suðureyjagöngum við Stórabeltisbrúna sem tengir Fjón og Sjáland í Danmörku. „Þegar hugsað er til langs tíma er þetta ekki vitlaust fjárhagslega.“
Færeyjar Danmörk Þingkosningar í Danmörku Kosningar í Færeyjum Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira