Frá hásæti orkudrottningar Kristín Linda Árnadóttir skrifar 28. mars 2026 10:02 Á rúmlega 60 ára starfsævi sinni hefur orkufyrirtæki þjóðarinnar unnið mjög ötullega að ýmiss konar umhverfismálum, náttúruvernd og loftslagsmálum. Við hjá Landsvirkjun gerum okkur mjög vel grein fyrir áhrifum starfsemi okkar á umhverfið og leitumst við að lágmarka þau með öllum ráðum. Eftir ársfund Landsvirkjunar var okkur bent á ýmislegt sem betur mætti fara og við fögnum því. Það er mikilvægt fyrir okkur að hluta á gagnrýnisraddir og bregðast við því sem betur má fara en ég geri þó þá kröfu að gagnrýnin sé málefnaleg. Á tímum þegar jafnréttisbarátta síðustu áratuga á undir högg að sækja þykir mér áríðandi að svara sérstaklega grein sem birtist hér á Vísi undir yfirskriftinni Orkudrottningar Orkueyjunnar. Í henni var talið sérstaklega ámælisvert að á ársfundi Landsvirkjunar hinn 3. mars hafi kynsystur greinarhöfundar og jafnöldrur, „fluggáfaðar í fallegum fötum“ verið í brúnni og flutt „boðskapinn, hvert einasta orð borið fram skýrt og með þunga“. Yfirskrift greinarinnar vísaði augljóslega til þeirra kvenna sem stigu þarna á svið fyrir hönd Landsvirkjunar. Það var ég sem aðstoðarforstjóri og að auki var það stjórnarformaður fyrirtækisins, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu og forstöðumaður Samskipta. Það hvarflar ekki að mér að biðjast afsökunar á því að allar höfum við verið vel undirbúnar og flutt mál okkar af þekkingu og öryggi. Eins og áður segir þá fögnum við gagnrýni en það er eðlileg krafa að slík gagnrýni sé fagleg en vísi ekki til þess að við séum vel klæddar konur, samstilltar eins og í „stafrænu hljóðblöndunartæki“, eins og kynsystir okkar og jafnaldra orðar það. Ég hélt að slíkur málflutningur tilheyrði liðinni tíð. Megintilgangur skrifanna virðist þó vera að kvarta undan því að ársfundurinn í ár fjallaði ekkert um umhverfismál eða náttúruvernd og sjálfsagt að svara því. Aðgerðaáætlun í loftslags- og umhverfismálum Við höfum í langan tíma lagt mikla áherslu á að upplýsa um starfsemi Landsvirkjunar í loftslags- og umhverfismálum. Fyrirtækið er með virka aðgerðaáætlun sem miðar að því að tryggja umhverfislega sjálfbærni, hámarka ábyrga nýtingu þeirra auðlinda sem okkur hefur verið trúað fyrir, standa vörð um líffræðilega fjölbreytni með vistkerfisnálgun að leiðarljósi og taka þátt í að tryggja að hlýnun haldist innan við 1,5°C. Landsvirkjun stendur að umfangsmiklum aðgerðum í landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis. Frá upphafi höfum við grætt upp miklu stærri landsvæði en okkur hefur verið skylt. Við stundum líka víðtæka vöktun á lífríki á áhrifasvæðum aflstöðva fyrirtækisins, auk sértækra rannsókna hverju sinni í samstarfi við háskóla, rannsóknastofnanir og sjálfstæða sérfræðinga. Við leggjum metnað okkar í að uppfylla öll skilyrði laga um stjórn vatnamála á starfssvæðum okkar. Öll náttúruleg vatnshlot, 77 talsins, á starfssvæðum Landsvirkjunar eru í góðu eða mjög góðu ástandi. Við erum núna að meta mikið breyttu og manngerðu vatnshlotin, alls 70 talsins. Allar aflstöðvar Landsvirkjunar eru umhverfislega sjálfbærar. Orkuvinnsla okkar stuðlar þannig að mótvægi við loftslagsbreytingar og veldur ekki verulegum skaða gagnvart öðrum þáttum. Losun með minnsta móti Losun vegna orkuvinnslu okkar er eingöngu 3,1 g á hverja unna kílóvattstund. Meðaltal losunar orkuvinnslu í heiminum er um 440 g á hverja kWst. Í Evrópu er þessi tala 200 g/kWst. Losun okkar er því með því allra minnsta sem gerist í heiminum. Heildstætt loftslagsáhættu- og viðkvæmnimat fyrir allar aflstöðvar fyrirtækisins sýnir að engar verulegar loftslagstengdar áhættur eru í rekstri aflstöðva fyrirtækisins. Árið 2025 varð rekstur okkar á Mývatnssvæðinu laus við allt jarðefnaeldsneyti og um síðustu áramót voru 97% af fólksbílum okkar hreinorkubílar. Frá árinu 2018 höfum við beitt innra kolefnisverði til að taka upplýstar ákvarðanir þegar kemur að losun gróðurhúsaloftegunda og forgangsraða aðgerðum til að draga úr losun. Náttúra og sjálfbær nýting Umhverfisstjórnunarkerfi okkar hefur verið vottað skv. ISO 14001 frá árinu 2006 og frá því ári höfum gefið út árlegar umhverfisskýrslur. Ástand nytjastofna fiska í ám og vötnum á starfssvæðum okkar er vaktað og reglulega fylgst með öðruvatnalífríkioglífríki á landi. Við nýtum endurnýjanlega orkugjafa með sjálfbærum hætti og leggjum áherslu á að ganga ekki hraðar á auðlindir en þær endurnýja sig. Við höfum innleitt öll fimm Grænu skrefin á öllum okkar starfsstöðvum og fengið úttekt frá Umhverfis- ogorkustofnunþví til staðfestingar. Við ástundum vistvæn innkaup og tökum tillit til þeirra áhrifa sem varan og framleiðsluferlið hefur á umhverfið. Ég gæti haldið áfram lengi enn, en vonandi gefur þessi upptalning lesendum einhverja innsýn í umfangsmikla starfsemi Landsvirkjunar í öllu sem lýtur að umhverfi og náttúru. Þessi hluti starfseminnar var vissulega ekki umfjöllunarefni á 90 mínútna ársfundinum í byrjun mars. Í tilvitnaðri grein sinni vísar höfundurinn reyndar til þess að á síðustu árum hafi loftslagsmál verið mikið rædd til að færa rök fyrir orkuskiptum. Það er alveg rétt hjá henni. Efni ársfundarins 2026 var annað, en það þýðir sannarlega ekki að við sláum slöku við í umhverfis- og loftslagsmálum. Allt áhugafólk um náttúruvernd getur fundið mjög mikið ítarefni á vefnum okkar, Landsvirkjun.is. Ég leyfi mér að lokum að taka fram, svo enginn misskilningur vakni, að titill þessarar greinar er valinn til að grínast með það heiti sem greinarhöfundur valdi mér og samstarfskonum mínum. Höfundur er aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Linda Árnadóttir Landsvirkjun Orkumál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar