Um Ketilsbraut 7-9 – Stjórnsýsluhús Norðurþings Rúnar Traustason skrifar 28. mars 2026 13:54 Undanfarin tvö ár hefur starfsemi stjórnsýslu- og félagsþjónustu Norðurþings verið á hrakhólum og leigt hefur verið undir starfsemina húsnæði að Garðarsbraut 5, í daglegu tali oft kallað Kaupfélagshúsið, og húsnæði að Túngötu 1. Þessir flutningar eru tilkomnir vegna rakaskemmda og myglu í stjórnsýsluhúsinu Ketilsbraut 7-9 og áhrifa þess á starfsfólk. Ástæðu rakaskemmda og myglu má rekja til skorts á viðhaldi húseignarinnar. Málið hófst 1.3 2023, þegar grunur vaknar um myglu í stjórnsýsluhúsinu. Það er síðan tekið fyrir á fundi skipulags og framkvæmdaráðs 19.12.2023. Þann 24.04.2024 var skipaður starfshópur um málið og skilaði hann þremur tillögum að leiðum þar sem kostir og gallar hverrar leiðar voru lagðar fram. Á fundi byggðarráðs þann 20.06.2024 eða rétt um 2 mánuðum eftir skipun starfshópsins var samþykkt í byggðarráði að fara leið 1 sem fól í sér að lagfæra húsnæðið að Ketilsbraut 7-9 og hefja starfsemi þar að nýju. Ákvörðun byggðarráðs var síðan samþykkt af sveitastjórn nokkrum dögum síðar eða þann 27.06.2024. Á fundi byggðarráðs 4.7.2024 var síðan samþykktur viðauki upp á 15 m.kr til að standa straum af hönnun og undirbúningi útboðs sem átti að vera síðar um haustið. Síðan eru að verða liðin 2 ár og lítið sem ekkert þokast áfram – Ketilsbraut 7-9 stendur auð og liggur undir frekari skemmdum. Sveitarfélagið greiðir 30 milljónir árlega í leigu meðan okkar eigin eign liggur undir skemmdum vegna aðgerðarleysis. Öllum er ljóst að fjárhagsstaða sveitarfélagsins ekki burðug um þessar mundir en það er ekki eins og þetta mál sé ný til komið. Meirihlutinn hefur haft 2 ár til að koma í veg fyrir vandann og keyra verkið áfram, en ekkert hefur gerst. Fyrir íbúa Norðurþings lítur málið þannig út að því hafi verið haldið í gíslingu af forsvarsmönnum meirihlutans. Sveitarfélagið Norðurþing er með um 7000 m.kr í tekjur á ári, það að á þessum 2 árum hafi ekki fundist 45 milljónir til að vernda húsið og hefja uppbyggingu er óskiljanlegt. Það er morgunljóst að um algera vanrækslu á eignum og fjármunum sveitarfélagsins er að ræða í þessu máli. M-Listi Samfélagsins hefur skýra stefnu í þessu máli. Strax verður hafist handa í þrepaskiptri björgun húsnæðisins, viðhaldi og uppbyggingu. Ketilsbraut 7-9 verður byggð upp með vönduðu og skipulögðu viðhaldi skipt verður um þak á norðurhluta húsnæðis og drenað í kring um húsið. Með því er hindrað að frekari skemmdir á húsnæðinu eigi sér stað. Gert verður við þær skemmdir sem eru til staðar og tryggt að húsnæðið standist kröfur um heilnæmi og hollustuhætti og starfsemi verði flutt aftur í það um leið og þær kröfur standast. Farið verði í frekari endurbætur, húsið skipulagt að nýju í takt við verkefni og þarfir sveitarfélagsins og tryggt verði gott aðgengi fyrir alla sem þangað sækja þjónustu. Við sjáum peningunum okkar betur varið í að standsetja og sinna okkar eigin eign heldur en að horfa á þær grotna niður og leigja á 30 m.kr árlega annað húsnæði. Höfundur skipar 1. sæti á M-Lista í Norðurþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Norðurþing Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar