Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar 16. október 2026 13:32 Hvað gerist ef við getum ekki greitt fyrir vörur, nálgast mikilvægar upplýsingar eða haft samband við þau sem við þurfum að ná í? Við leiðum sjaldan hugann að þessum spurningum þegar allt virkar með eðlilegum hætti. Daglegt líf okkar byggir þó í síauknum mæli á því að stafræn þjónusta sé aðgengileg, upplýsingar séu varðar og við getum treyst þeim kerfum sem við notum. Þess vegna kemur netöryggi okkur öllum við. Þegar allt virkar getur öryggið gleymst Október er alþjóðlegur netöryggismánuður og gefur okkur tilefni til að vekja athygli á mikilvægi netöryggis, efla þekkingu og hvetja til aðgerða. Það er mikilvægt að nýta tækifærið til að minna á að öruggt stafrænt samfélag verður ekki til af sjálfu sér. Það byggir á samvinnu, skýrri ábyrgð og árvekni. Það er ástæða fyrir því að sérstakur mánuður er helgaður þessari umræðu. Netöryggi getur auðveldlega fallið í skuggann af öðrum verkefnum, sérstaklega þegar ekkert virðist vera að. Þá frestast uppfærslur, fræðsla situr á hakanum og viðbragðsáætlanir eru látnar bíða. Netöryggismánuðurinn gefur okkur tækifæri til að staldra við, skoða stöðuna og ákveða hvað þarf að bæta. Afleiðingarnar ná langt út fyrir tölvukerfin Afleiðingar netöryggisatvika geta náð langt út fyrir þau kerfi þar sem þau hefjast. Þjónusta getur stöðvast, upplýsingar glatast eða komist í rangar hendur og traust beðið hnekki. Fyrir einstakling getur þetta þýtt fjárhagslegt tjón, mögulegt sálrænt tjón og óöryggi. Fyrir fyrirtæki eða stofnun getur það þýtt rekstrarstöðvun og erfiðleika við að sinna viðskiptavinum eða almenningi. Fyrir samfélagið í heild geta beinar og óbeinar afleiðingar jafnframt leitt til almannavarnaástands. Þegar mikilvægir innviðir verða fyrir truflunum eða árásum geta áhrifin þannig náð til samfélagsins alls.Þess vegna þurfum við að líta á netöryggi sem meira en afmarkað tæknilegt viðfangsefni. Það er hluti af samfélagsöryggi okkar.Við þurfum að ræða netöryggi þannig að fólk sjái tenginguna við eigið líf og starf. Það snýst um að geta treyst þjónustunni sem við reiðum okkur á, að viðkvæmar upplýsingar séu öruggar og að viðbrögð séu skipulögð þegar eitthvað fer úrskeiðis. Fræðslan þarf jafnframt að vera skiljanleg og aðgengileg og gefa fólki færi á að spyrja spurninga. Seigla samfélagsins skiptir máli Í tilefni netöryggismánaðarins heldur Fjarskiptastofa árlega netöryggisráðstefnu sína þann 27. október. Í ár verður áherslan á netöryggi og seiglu samfélagsins, enda hefur sjaldan verið jafn brýnt að líta á netöryggi sem órjúfanlegan þátt í samfélagsöryggi. Seigla felst í því að geta staðist áföll, viðhaldið mikilvægri þjónustu og náð aftur eðlilegri starfsemi eftir truflanir. Á ráðstefnunni verður skapaður vettvangur fyrir þekkingarmiðlun og samtal um hvernig við getum styrkt þessa getu á Íslandi. Slíkt samtal skiptir máli en það má ekki einskorðast við einn dag eða einn vettvang. Gildi þekkingarmiðlunar felst meðal annars í því að við lærum hvert af öðru, reynslan sem einn aðili öðlast getur hjálpað öðrum að greina áhættu og bæta viðbúnað. Samtal þvert á fyrirtæki, stofnanir og starfsgreinar getur þannig leitt til betri ákvarðana og markvissari aðgerða. Þekkingin þarf síðan að skila sér inn í daglegt starf. Netöryggi er verkefni allt árið Stjórnendur geta til dæmis nýtt október til að yfirfara netöryggi hjá sér og ræða þessi mál við starfsfólk. Mikilvægt er að fara reglulega yfir grunnatriðin og tryggja að allir viti hvað mikilvægast er að verja og hver kjarnakerfi starfseminnar eru. Starfsfólk þarf jafnframt að þekkja hlutverk sitt og vita hvernig bregðast á við ef vinnustaðurinn verður fyrir áfalli eða árás. Netöryggismánuðurinn stendur í einn mánuð en verkefnið er viðvarandi. Nýtum athyglina nú til að efla þekkingu, styrkja samstarf og fylgja góðum áformum eftir með aðgerðum allt árið. Þannig eflum við saman seiglu samfélagsins. Höfundur er sérfræðingur í net- og upplýsingaöryggi hjá netöryggissviði Fjarskiptastofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir Skoðun Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Auglýst eftir málsvara Suðurkjördæmis Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Í árlegum skugga PISA Benedikt Sigurðarson skrifar Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Skoðun Við tölum mikið um geðheilsu en hvað með vinnuumhverfið? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Hvað gerist þegar vanþekking fær ákvörðunarvald yfir lífi barna? Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun