Trump, Íran, Úkraína og NATO Arnór Sigurjónsson skrifar 28. mars 2026 15:33 Utanríkisráðherra Bandaríkjanna ávarpaði fjölmiðla við brottför á leið til þátttöku í G-7 fundinum í Frakklandi föstudaginn 27. mars s.l. Aðspurður um ítrekaðar yfirlýsingar Trump, forseta Bandaríkjanna um hugleysi aðildarþjóða Atlantshafsbandalagsins og gagnleysi þess vegna tregðu við að koma honum til bjargar við opnum Hormuz sunds sem Íranir hafa lokað í kjölfar yfirstandandi stríðsátaka sagði hann m.a. eftirfarandi: „Aðildarþjóðir Altantshafsbandalagsins hafa sagt að stríðið við Íran sé ekki þeirra stríð og á sama hátt getum við sagt að stríðið í Úkraínu sé ekki okkar stríð þrátt fyrir að við höfum eytt miklu til að stöðva það. Þetta er eitthvað sem við þurfum að huga nánar að í framtíðinni.“ Látum nú vera að aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins voru ekki spurðar álits eða beðnar um samþykki þegar Bandaríkin og Ísrael hófu loftárásir á Íran fyrir fjórum vikum síðan. Og látum það líka liggja á milli hluta að markmið þessara árása hafa verið og eru óljós og engin veit hvað Bandaríkjamenn eru að biðja NATO um að gera. Trump sagði í upphafi að þessar þjóðir ættu að senda herskip til að opna Hormuz sund, eitthvað sem Bandaríkjamenn voru ekki tilbúnir að gera sjálfir vegna hættu á að þeim yrði grandað. Nú telur hann ekki lengur þörf á því. Og staðreyndin er sú að engin veit hvernig eða hvenær þessi stríðsátök enda, en liðsflutningar bandarískra fótgönguliða til svæðisins og neikvæð afstaða íranskra stjórnvalda til hugsanlegra friðarviðræðna bendir til að þau geti varað í langan tíma. Árásaraðilarnir virðast hafa misreiknað þanþol Írana til að verjast og mýrarpytturinn sem þeir standa í dýpkar. Eftirfarandi er því áhugavert fyrir okkur Íslendinga: ·Trump forseti Bandaríkjanna og hans æðstu embættismenn tala um aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins með mikilli fyrirlitningu sem hugleysingja og þjóðir sem skuldi Bandaríkjunum allt vegna framlags þeirra til varna Evrópu og nú þegar þeim vanti aðstoð vegna Íransstríðsins neiti þessar þjóðir að axla ábyrgð sem verðugir bandamenn. Að sögn Bandaríkjamanna mun þessi afstaða aðildarþjóða NATO hafa afleiðingar, en hverjar þær verða er ósagt. Leiða má líkur að því að þær geti orðið annars vegar að stuðningur Bandaríkjanna við Úkraínu sem er lítill hverfi og endalok samningaviðræðna við Rússa sem Bandaríkjamenn hafa veitt forystu og hins vegar minni þátttaka Bandaríkjanna í varnarsamstarfi NATO. Sá möguleiki að Trump forseti segi Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu er einnig fyrir hendi, ef vísað er til fyrri yfirlýsinga hans, en slík ákvörðun mun þurfa samþykki bandaríska þingsins til þess að verða endanleg. Það virðist sem myndast hafi hyldjúp gjá milli þjóðarhagsmuna Bandaríkjanna og Evrópu hvað öryggis- og varnarsamstarf varðar eins og Grænland, Kanada og nú Evrópa bera vitni um. ·Það er einnig athyglisvert að Miðjarðarhafsþjóðirnar sem liggja að Íran og hafa orðið fyrir barðinu á rúmlega 85% allra þeirra eldflauga og dróna sem Íranir hafa skotið upp á undanförnum vikum hafa staðið til hlés í þessum stríðsátökum. Hversu lengi það varir ef stríðið dregst á langinn er ekki gott að spá um, en þar hefur Trump forseti ekki kallað eftir hernaðaraðstoð þó svo að þessar þjóðir séu nú hluti af yfirstandandi átökum og teljast bandamenn Bandaríkjanna. Þessi þróun mála hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir íslensk stjórnvöld. Báðar grunnstoðir íslenskra varna byggja alfarið á velvilja Bandaríkjanna og ef hann hverfur er öryggi og varnir Íslands að engu orðið. Ástæðan er sú að samkvæmt nýsamþykktri varnarstefnu Alþingis er öllum vörnum landsins útvistað til NATO og Bandaríkjanna. Íslendingar eru stikkfrí í eigin vörnum og engin lagaákvæði kveða á um að þeim beri að taka upp vopn til varnar Íslandi ef óvænt eða fyrirvaralaus hernaðarógn blasir við. Þó svo að Ísland geti ekki staðið eitt og óstutt í hættulegum heimi er sú hugsun ógnvænleg að það sé á forsendum Trumps forseta! Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari Háskóli, sterkari Akureyri! Maríanna Margeirsdóttir skrifar Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson skrifar Skoðun Sérðu táknmálið? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reynsla réttlætir ekki reglubrot Þórður Sigurjónsson skrifar Skoðun Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir hinsegin fólk! skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Grjótharðir og sársaukafullir veggir máttvana geðheilbrigðiskerfisins Sólveig María Svavarsdóttir skrifar
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar