Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2026 14:25 Lars Boje Mathiesen, leiðtogi Borgaraflokksins, ræddi við blaðamenn í morgun eftir að nýkjörinn þingmaður var rekinn úr flokknum um helgina. Málið var ekki síst óþægilegt fyrir Boje sem hafði gagnrýnt þingmenn annarra flokka sem fóru í leyfi vegna persónulegra hneykslismála. Brottrekni þingmaðurinn fór fyrst í leyfi en kom aftur úr því eftir að honum var sparkað úr flokknum. Hann ætlar að sitja áfram á þingi. Vísir/EPA Tveir nýkjörnir þingmenn úr röðum bláu blokkarinnar svonefndu í Danmörku voru reknir úr flokkum sínum vegna hneykslismála um helgina. Einn leiðtoga hennar segir út um bláu blokkina. Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram eftir helgarfrí á morgun.
Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins og starfandi forsætisráðherra, er með umboð til stjórnarmyndunar frá konungi eftir þingkosningar sem voru haldnar í síðustu viku. Hún fundaði með fullrúum sjö flokka fyrir helgi og hyggst taka upp þráðinn á ný á morgun, þá með fulltrúum flokkanna frá Færeyjum og Grænlandi. Á meðan kvarnast upp úr þingliði bláu blokkarinnar, kosningabandalags hægri- og miðhægriflokka. Þeir geta ekki lengur myndað meirihluta með Moderaterna, sem eru í oddastöðu eftir kosningarnar, eftir brottrekstur þingmanna tveggja þeirra um helgina. Jacob Harris var sparkað úr Borgaraflokknum og Cecilie Liv Hansen úr Frjálslynda bandalaginu. Harris var sakaður um misferli með fjármuni gjaldþrota fyrirtækis. Hann fór í leyfi vegna ásakanna en eftir að hann var rekinn úr Borgaraflokknum hætti hann í leyfinu. Hansen var rekin úr Frjálslynda bandalaginu fyrir að upplýsa ekki um einkahagi sína. Flokkurinn skýrði það ekki frekar en danskir fjölmiðlar segja að maki Hansen hafi selt fíkniefni. Hvorugt þeirra ætlar þó að segja af sér heldur taka sæti á þingi sem óháðir þingmenn. Efaðist um að þingkona væri í raun dönsk Líkurnar á að Moderaterna halli sér frekar til hægri en að halda áfram samstarfi við jafnaðarmenn virðast ekki miklar ef marka má færslu frá Mohammad Rona, þingflokksformanni flokksins á fráfarandi þingi. „Sú blokk er alveg finito núna,“ skrifaði Mohammad Rona á samfélagsmiðilinn X. Vísaði Rona til ummæla Nödju Natlie Isaksen frá Borgaraflokknum sem sagði að Samira Nawa, talskona Róttæka vinstriflokksins, væri aðeins dönsk í lagalegum skilningi. Foreldrar Nawa voru afganskir flóttamenn sem komu til Danmerkur á níunda áratugnum. Rona sagðist telja ummæli Isaksen stærsta hneyksli bláu blokkarinnar eftir kosningar.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira