Jóhanna stígur til hliðar eftir fimmtán ár sem formaður Aron Guðmundsson skrifar 30. mars 2026 17:30 Jóhanna á stóran þátt í uppgangi körfuboltans í Þorlákshöfn Mynd: Þór Þorlákshöfn Jóhanna Margrét Hjartardóttir hefur ákveðið að stíga til hliðar sem formaður körfuknattleiksdeildar Þórs Þorlákshafnar eftir rúmlega fimmtán ár í embætti.
Jóhanna greinir frá ákvörðun sinni í færslu sem birtist á samfélagsmiðlareikningi Þórs Þorlákshafnar fyrr í dag. Þáttur hennar í uppgangi körfuboltans í Þorlákshöfn er mikill og hefur bærinn bæði átt lið í efstu deild karla og kvenna. Í formannstíð Jóhönnu vann Þór Þorlákshöfn einnig sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil til þessa í sögunni árið 2021 í karlaflokki.. Aðalfundur körfuknattleiksdeildar Þórs Þorlákshafnar fer fram annað kvöld og verður Jóhanna þar ekki í framboði til formanns. „Þessi ár hafa verið mér ómetanleg,“ segir Jóhanna. „Bæði lærdómsrík og afar ánægjuleg. Ég hef haft þann heiður að starfa með frábæru fólki; stjórnarfólki, sjálfboðaliðum og þjálfurum sem er tilbúið að bretta upp ermar og láta til sín taka í fjölbreyttum verkefnum. Starfið hefur verið fullt af eftirminnilegum stundum. Eins og gengur hafa komið bæði áskoranir og gleðistundir, en einmitt sú blanda hefur gert þetta ferðalag svo lærdómsríkt og gefandi. Það hefur verið sannur heiður að taka þátt í uppbyggingunni hjá okkur Þórsurum og fylgjast með starfinu vaxa og dafna með samstilltu átaki okkar allra.“ Þá hafi verið sérstaklega dýrmætt að kynnast öllum þeim sem brenna fyrir körfuboltahreyfinguna á landsvísu. „Ég horfi björtum augum til framtíðar og hlakka til að sjá starfið halda áfram að þróast og blómstra í höndum nýrra leiðtoga og öflugra sjálfboðaliða. Ég mun áfram styðja starfið af heilum hug og fylgjast með af stolti.“
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Körfubolti Hamar Bónus-deild kvenna Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira