Í toppstandi og stefnir á alla titla Valur Páll Eiríksson skrifar 1. apríl 2026 15:02 Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings. Vísir/Lýður Valberg Framherjinn Nikolaj Hansen hræðist ekki aukna samkeppni í liði Víkinga fyrir komandi átök í sumar. Víkingar unnu fyrsta titil sinn á leiktíðinni um helgina og ætla sér að vinna allt sem í boði er.
Íslandsmeistarar Víkings urðu meistarar meistaranna eftir 4-0 sigur á Vestra um helgina þar sem Daninn Nikolaj Hansen, fyrirliði liðsins, skoraði tvö marka Víkinga. Í fyrsta sinn í þónokkur ár hefur Hansen farið algjörlega meiðslalaus í gegnum undirbúningstímabilið og er klár í slaginn. „Við lítum mjög vel út. Þetta var mjög fínn leikur og fyrri hálfleikur var sérstaklega góður. Við stýrðum leiknum, fengum mörg færi og hefðum getað skorað eitt í viðbót,“ segir Nikolaj í samtali við Stefán Árna Pálsson í Sportpakkanum á Sýn. Elías Már Ómarsson samdi við Víkinga í vetur til að veita aukna samkeppni í framherjastöðunni. Það hefur veitt Nikolaj aukinn kraft á yfirstandandi undirbúningstímabili. „Þetta verður svona. Ég er í einu stærsta félaginu á Íslandi og þá verður að vera samkeppni. Ég hef sagt það að Elías pressar á mig og ég pressa á Elías. Þetta er gott fyrir okkur báða. Við munum báðir spila leiki hér og þar en ég þarf að gera allt til að Sölvi velji mig,“ segir Nikolaj. Víkingar eru að öðrum ólöstuðum með sterkasta og stærsta leikmannahóp landsins og taldir líklegastir í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Það er pressa fyrir komandi tímabil. „Já, já. Við erum með stóran hóp, góða leikmenn í öllum stöðum og svo verður þetta langt tímabil. Við ætlum að vinna deildina í ár, það er langt síðan lið hefur unnið tvö ár í röð. Við ætlum að gera það. Vonandi komumst við langt í Evrópu og förum vonandi lengra í bikarnum eftir að hafa fallið út í fyrstu umferð í fyrra,“ segir Nikolaj og bætir við: „Við mætum Fram núna á laugardaginn og það verður bara svona áfram. Við erum með stóran hóp og menn hafa allir æft mjög vel í vetur.“ Viðtalið má sjá í spilaranum.
Víkingur Reykjavík Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira