Brotist inn og gert sig heimakominn Freyja Þórisdóttir skrifar 3. apríl 2026 08:06 Sjötíu mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu og gistu fimm í fangaklefa. Vísir/Vilhelm Lögreglan brást við útkalli þar sem par var sagt rífast hástöfum í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Brotist var inn í íbúð og þegar lögreglu bar að garði hafði viðkomandi gert sig heimakominn og var búinn að róta talsvert í eigum íbúa.
Þetta og fleira var í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir síðastliðna tólf klukkutíma. Á tímabilinu voru sjötíu mál skráð en meðal þeirra var útkall lögreglunnar vegna pars sem öskurreifst í verslunarmiðstöð í Reykjavík. Þegar lögreglan hafi verið komin á vettvang hafi maðurinn verið búinn að yfirgefa vettvang en konan verið þar enn og henni hafi verið fylgt heim til sín. Lögreglustöð eitt, sem sinnir hverfum 101, 105, 107 og 170, var einnig tilkynnt um innbrot í íbúð í Reykjavík. Þá segir að búið hafi verið að róta þar um og að einhver virðist hafa vera búinn að gera sig heimakominn en málið sé enn í rannsókn. Maður vopnaður kylfu og hópslagsmál Kona óskaði eftir aðstoð lögreglu við að hafa uppi á símanum sínum. Hann væri að senda frá sér ítrekuð boð um staðsetningu sína en lögreglunni hafi tekist að hafa uppi á þeim sem hafði tekið umræddan síma. Sá reyndist vopnaður kylfu og undir áhrifum vímuefna en maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Hópslagsmál hafi brotist út í miðbæ Reykjavíkur í nótt og að þeir sem sýndu af sér hvað mest ofbeldi hafi verið handteknir og vistaðir í fangaklefa. Í dagbókinni kemur fram að allir viðloðnir slagsmálin hafi verið ölvaðir. Lögreglustöð tvö, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um ógnandi aðila sem hafi reynst vera ölvaður og vopnaður hníf. Maðurinn hafi verið handtekinn og vistaður í klefa en hann var að sögn rólegur þegar lögreglan kom á vettvang.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira