Stefán Ingi og Alfons allt í öllu í sigri í nágrannaslag Aron Guðmundsson skrifar 5. apríl 2026 13:40 Alfons og Stefán Ingi lögðu svo sannarlega sitt að mörkum í nágrannaslag dagsins. Vísir/Samsett Stefán Ingi Sigurðarson skoraði eitt mark og Alfons Sampsted lagði upp tvö í 5-0 sigri Go Ahead Eagles á PEC Zwolle í nágrannaslag í hollensku úrvalsdeildinni í dag.
Bæði Stefán Ingi og Alfons voru í byrjunarliði Go Ahead Eagles í dag í leik sem seinkaði töluvert sökum óláta stuðningsmanna PEC Zwolle sem neituðu að taka niður klæði er huldu andlit þeirra. Svo fór að þeim var vísað af velli og leikurinn fór af stað um einum og hálfum tíma eftir að hann átti upphaflega að vera flautaður á. Leikmenn Go Ahead Eagles létu seinkunina lítið á sig fá og það voru þeir sem mættu tilbúnari til leiks. Stefán Ingi skoraði fyrsta mark leiksins strax á fjórðu mínútu og aðeins þremur mínútum síðar tvöfaldaði Sören Tengstedt forystu Go Ahead Eagles með marki eftir stoðsendingu frá Alfons Sampsted. Íslendingarnir að gera gott mót í upphafi leiks og Alfons var aftur á ferðinni er hann lagði upp þriðja mark liðsins fyrir Victor Kaj Edvardsen á 15. mínútu. Staðan orðin 3-0 eftir stundarfjórðung og leikurinn í raun búinn. Heimamenn héldu þó áfram að bæta við mörkum. Aske Adelgaard skoraði fjórða mark Go Ahead Eagles á 56. mínútu áður en að Mathis Suray innsiglaði frábæran 5-0 sigur liðsins. Sigurinn stór og mikilvægur hjá Go Ahead Eagles sem lyftir sér með honum upp í 11.sæti hollensku úrvalsdeildarinnar og upp fyrir PEC Zwolle. Fimm umferðir eru eftir af hollensku deildinni og á Go Ahead Eagles enn raunhæfan möguleika á því að komast í umspil um sæti í Evrópukeppni sem liðin í fimmta til áttunda sæti deildarinnar fara í.
Hollenski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Fleiri fréttir Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Sjá meira