76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Valur Páll Eiríksson skrifar 8. apríl 2026 12:58 Sjálfstæðisflokkurinn fær 43 prósenta fylgi í komandi sveitarstjórnarkosningum frá þeim leikmönnum í Bestu deild karla sem tóku þátt í könnuninni. Samsett/Vísir Áhugaverð könnun var gerð á meðal leikmanna í Bestu deild karla í fótbolta í aðdraganda komandi leiktíðar sem hefst á föstudaginn kemur. KR-ingar verða áberandi í sumar ef marka má könnunina og þá eru skýrar línur dregnar í pólitíkinni.
Leikmenn í Bestu deildinni voru spurðir að hefðbundnum spurningum fyrir komandi leiktíð um besta leikmann, þjálfara, kaup og fleira. Liðsmenn KR voru sérlega áberandi. Flestir telja að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, verði besti leikmaðurinn, að Eiður Gauti Sæbjörnsson, framherji KR, verði markahæstur og að Arnór Ingvi Traustason, nýr leikmaður KR, séu bestu kaupin fyrir tímabilið. Fengju leikmenn að velja sér annan þjálfara í deildinni en þann sem þeir starfa undir núna yrði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, fyrir valinu. Tómas Orri Róbertsson í FH er sagður mesti tuðarinn í deildinni og Birnir Snær Ingason, nýr leikmaður Stjörnunnar, skemmtilegastur innan vallar og utan. Víkingur á þá bestu stuðningsmennina samkvæmt könnuninni. 76 prósent leikmanna sem tóku þátt í könnuninni eru andvígir inngöngu í ESB.ÍTF Leikmenn í Bestu deildinni voru einnig spurðir út í pólitísk málefni. Aðeins 24 prósent leikmanna sem tóku þátt eru fylgjandi aðild Íslands að ESB og 76 prósent andvígir. Hvað komandi sveitastjórnarkosningar varðar hyggjast 43 prósent þátttakenda kjósa Sjálfstæðisflokkinn og 33 prósent Miðflokkinn - samanlagt 76 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn fær 43 prósent fylgi leikmanna í vor og Miðflokkur 33 prósent. Aðrir flokkar eru undir 10 prósentum á meðal leikmanna sem tóku þátt.Mynd/ÍTF Aðrir flokkar fá fylgi í eins stafs tölu. Niðurstaða leikmannakönnunar: Besti leikmaðurinn í sumar: Aron Sigurðarson (KR) Markahæstur í sumar: Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR) Mesti tuðarinn: Tómas Orri Róbertsson (FH) Skemmtilegastur innan vallar og utan: Birnir Snær Ingason (Stjarnan) Bestu kaupin: Arnór Ingvi Traustason (KR) Hvaða annan þjálfara vilt þú: Óskar Hrafn Þorvaldsson (KR) Bestu stuðningsmenn: Víkingur R. Hvaða land vinnur HM í sumar: Spánn
Besta deild karla Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Tekur ekki við afsökunarbeiðninni og segir hann ljúga Fótbolti ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Íslenski boltinn Lokadagur heimsleikanna í CrossFit: Í hvaða sætum enda Íslendingarnir? Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport Kvenkyns dómari slasaðist í slagsmálum í vináttuleik Fótbolti Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fleiri fréttir ÍA-Stjarnan 5-1: Draumabyrjun ÍA í martraðarheimkomu Jóns Þórs Leik lokið: FH-Fram 0-0 | Mörg mörk síðast en ekkert í kvöld Kláraði Harvard og samdi við Blika Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Sjá meira