Nova „heppilegur eigandi“ að Ofar og samlegðaráhrifin sögð varlega metin
Þrátt fyrir að nýleg kaup Nova á upplýsingatæknifyrirtækinu Ofar hafi komið nokkuð á óvart, að mati hlutabréfagreinanda, þá líta þau vel út en yfirlýst samlegðaráhrif eru sögð vera fremur varlega metin. Verðmat Nova helst nánast óbreytt milli fjórðunga og er félagið talið verulega undirverðlagt á markaði.
Tengdar fréttir
Telur Nova verulega undirverðlagt og segir félagið „augljóst“ yfirtökuskotmark
Núna þegar Nova er byrjað á vaxtarvegferð, eftir kaupin á minnihluta í Dineout, ásamt því að ráða yfir meiri innviðum en hin fjarskiptafyrirtækin þá er félagið meðal annars „augljóst“ yfirtökuskotmark, að mati hlutabréfagreinanda. Í frumskýrslu um Nova er félagið verðmetið langt yfir núverandi markaðsgengi, nokkuð hærra en hjá öðrum greinendum, en hlutabréfaverðið tók mikið stökk á markaði sama dag og hún birtist.