Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar 10. apríl 2026 13:00 Ég verð að viðurkenna eitt. Ef loftslagsmálin eru samsæri, þá hef ég greinilega valið mér ranga stöðu í því. Samkvæmt sumum ætti ég að vera hluti af alþjóðlegu neti sem græðir á því að búa til reglur, flækja líf almennings og ýta undir einhvers konar græna valdbeitingu. Ég á líklega að vakna á morgnana, fá greiðslu frá einhverjum dularfullum sjóði og eyða deginum í að semja staðla sem enginn skilur nema innvígðir. Mér þykir leitt að þurfa að valda vonbrigðum. Veruleikinn er öllu minna spennandi. Það liggja engir óútfylltir tékkar á náttborðinu mínu þegar ég vakna á morgnana. Kannski er það þó einmitt einkenni góðs samsæris. Það á að vera ósýnilegt. Og það verður að segjast eins og er að það er ákveðin heillandi hugmynd að loftslagsvísindi séu stærsta blekking mannkynssögunnar. Þúsundir vísindamanna, hundruð stofnana og áratugir rannsókna, allt samstillt í einni frásögn. Ef þetta væri rétt, þá væri það afrek í skipulagningu sem mannkynið hefur einfaldlega ekki sýnt á öðrum sviðum. Sérstaklega þegar haft er í huga hversu erfitt reynist að samræma jafnvel einfaldari hluti í alþjóðasamstarfi. En kannski er þetta allt í höndum sama fólks og sér um að úða yfir okkur með „chemtrails“. Ég hef sjálfur horft upp í himininn og séð þessar löngu hvítu rákir. Mér hefur þó aldrei tekist að fá staðfest hvort þær séu hluti af alþjóðlegu samsæri eða einfaldlega afleiðing þess að flugvélar fljúga í köldu lofti með heitan útblástur. Það er kannski dæmigert fyrir umræðuna að einfaldar skýringar virðast sjaldan eins áhugaverðar og flóknar. Sama gildir um hugmyndina um að einhverjir sitji og hagnist gríðarlega á loftslagsmálum. Það er auðvitað alltaf freistandi að trúa því að einhvers staðar sé hópur fólks sem hefur fundið snjalla leið til að græða á ástandinu. En ef markmiðið er að verða ríkur, þá virðist undarleg leið að velja sér verkefni sem felst í því að endurskipuleggja orkukerfi heimsins, umbreyta iðnaði og sannfæra samfélög um að breyta hegðun sinni. Það hlýtur að vera til einfaldari leið til þess að verða ríkur. Sumir hafa opnað batnafataverslun sem dæmi. Raunveruleikinn er hins vegar sá að loftslagsvísindi eru ekki byggð á trú eða tilfinningum heldur mælingum. Þær mælingar eru framkvæmdar víða um heim, af ólíkum aðilum, aftur og aftur, og niðurstöðurnar vísa í sömu átt. Það er ekki sérstaklega dramatískt, en það er stöðugt. Og það er einmitt stöðugleikinn sem gerir það erfitt að hunsa. Það sem hefur hins vegar breyst er hvernig efasemdir birtast. Þær eru sjaldnar settar fram sem bein afneitun og oftar sem hófstilltar spurningar sem virðast fullkomlega eðlilegar. Spurt er hvort við séum alveg viss? Hvort við ættum ekki að bíða aðeins lengur? Hvort þetta sé ekki flóknara en svo að hægt sé að grípa til afgerandi aðgerða? Hvort tæknin muni ekki leysa þetta á endanum? Hver þessara spurninga getur átt rétt á sér. En þegar þær safnast saman mynda þær mynstur sem hefur mjög skýr áhrif. Þær hægja á ákvarðanatöku. Þær færa umræðuna aftur á byrjunarreit. Og þær skapa þá tilfinningu að óvissan sé meiri en hún er í raun. Á meðan heldur þróunin áfram. Hún bíður ekki eftir því að við klárum umræðuna. Það sem gerir þetta allt saman svolítið kaldhæðnislegt er að á sama tíma og sumir sjá samsæri í loftslagsaðgerðum, er raunverulega verkefnið sem þarf að leysa eitt það flóknasta sem fyrirfinnst. Það snýst um að samræma mælingar, aðferðir og ábyrgð milli landa og geira, þannig að hægt sé að byggja upp traust og taka upplýstar ákvarðanir. Þar koma staðlar inn. Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki setning sem vekur mikla eftirvæntingu í kaffistofunni eða í fermingarveislunni. Samt er það einmitt þetta sem skiptir máli. Þegar við mælum hluti á sama hátt, skilgreinum þá skýrt og getum borið saman árangur, þá verður erfiðara að fela sig á bak við óvissu. Þá minnkar rýmið fyrir rangfærslur og umræðan verður skýrari. Kannski er það einmitt vandinn. Þegar skýrleikinn eykst verður erfiðara að fresta hlutunum. Ef þetta er samsæri, þá er það að minnsta kosti eitt það gagnsæjasta, flóknasta og minnst skilvirka í sögunni. Og ef það er ekki samsæri, sem er mun líklegra, þá stöndum við einfaldlega frammi fyrir verkefni sem krefst þess að við tökum vísindin alvarlega og fylgjum þeim eftir í verki. Það er kannski ekki jafn spennandi. En það skiptir meira máli. Ef þetta er samsæri þá má sá sem stjórnar því vinsamlegast leggja inn á mig. Ég á enn eftir að fá greitt fyrir að taka þátt í því. Höfundur er verkefnastjóri hjá Íslenskum stöðlum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Logi Jóhannsson Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar