Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar 11. apríl 2026 21:02 Sala eigna á Hólum og skortur á viðhaldi Það var ekki laust við að allmargir velunnarar Hóla í Hjaltadal hrykkju í kút þegar kvisaðist út að ríkisstjórnin hefði heimilað sölu á ýmsum eignum á Hólastað. Í þeim tillögum eru skólahúsið, skólastjórabústaðurinn, búshúsið og fleiri byggingar sem ásamt kirkjunni, hafa verið táknmyndir Hólastaðar í heila öld, fyrirmyndir listaverka sem prýða stofur heimila um allt land. Ástæðan er m.a. talin sú að kostnaður við að bjarga þeim eftir mygluskemmdir sé svo mikill að viðbættum rökum um að skólahúsið henti ekki lengur sem kennslu og skrifstofuhús sk.nýjustu kröfum. Alllengi hefur mátt sjá í hvað stefndi með þessar byggingar og umhverfi og í raun átakanlegt hve ríkið hefur sofið á verðinum og það ekki í fyrsta skipti þegar Hólar eiga í hlut. Helgasti staður landsins á eftir Þingvöllum, vagga kirkju, mennta og menningarsögu landsins, fyrrum höfuðstaður Norðurlands sem reistur var síðast úr rústum fyrir rúmum fjörutíu árum og fékk m.a. umhverfisverðlaun Skagafjarðar 2007. Að það sé ekki meiri metnaður til staðar er sorglegt og niðurlægingin alger þegar bjóða á upp helstu kennileiti staðarins eins og niðursetning á vistabandsárunum. Það virðist vera eins konar lenska hjá hinu opinbera að kosta miklu til nýframkvæmda og í raun á stundum allt of miklu vegna óráðsíu en láta svo eðlilegt og reglubundið viðhald bíða þar til allt er komið á eindaga. Ljósi punkturinn er biskupshús, dómkirkjan og Auðunarstofa sem vígslubiskup hefur undir sínum verndarvæng ásamt nánasta umhverfi og hlúir vel að. Sagan Það er ágætt að rifja aðeins upp söguna. Líkt og velsæld Íslendinga hefur Hólastaður risið og hnigið í takti við stjórnar- og náttúrufar, afkomu og umsýslu aldanna. Það má því telja einstaka bjartsýni hjá Skagfirðingum, í miðjum harðindum síðari hluta 19. aldar, að eignast Hóla og stofnsetja þar bændaskóla 1882 einmitt þegar fólksflóttinn til Vesturheims var hafinn. Við tók merkilegur kafli í sögu Hólastaðar. Fyrst stóðu Skagfirðingar að skólahaldi, síðan Norðuramtið, en ríkið tók yfir rekstur bændaskólanna 1907. Segja má að leiðin hafi legið uppávið framundir 1970. Þá hófst hnignunarkafli þar sem ríkið, sem eigandi staðarins svaf á verðinum svo verulega fór að falla á námsuppbyggingu, viðhald bygginga og ræktun. Stóð mjög glöggt að skólinn yrði aflagður með öllu. En viðspyrnan kom þegar Jón Bjarnason var ráðinn skólastjóri vorið 1981 og hann ásamt öflugri skólanefnd og farsælu starfsfólki tók til hendinni. Þáverandi ríkisstjórn hafði einnig mikinn metnað fyrir Hólaskóla og Hólastað. Þar fóru fremstir í flokki ráðherrar fjármála og landbúnaðar, þeir Ragnar Arnalds og Pálmi Jónsson á Akri. Upp hófust sannkölluð siðaskipti, byggt og breytt, ræktað og reitt. Bændaskólinn á Hólum reis úr öskustónni og laðaði að sér bæði gott starfsfólk og nemendur sem sóttu í námsframboð sem lagaði sig að nýjum og breyttum búháttum í sveitum með auknum fjölbreytileika sem síðar leiddi til verkaskiptingar bændaskólanna og áherslu Hóla á hestamennsku, fiskeldi og ferðaþjónustu. Árið 2003 fékk skólinn leyfi til að starfa sem háskólastofnun og í kjölfarið varð til Háskólinn á Hólum 2007. Við þá breytingu óx skólanum fiskur um hrygg, rannsóknarstarf efldist og nemendum fjölgaði umtalsvert. Á þessum árum var gríðarleg uppsveifla á Hólastað. Ýmsar stofnanir höfðu þar viðkomu og aðsetur s.s. Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar, Héraðssetur landgræðslunnar, Embætti dýralæknis hrossasjúkdóma og svo auðvitað vígslubiskupsembættið. Sumarbúðir fyrir börn og fatlaða voru í nokkrar vikur í mörg ár. Ferðaþjónustan dafnaði og bryddaði upp á margvíslegri afþreyingu. Þar má nefna vatnalífssýningu, húsdýragarð, leiðsögn um staðinn og nágrenni, sögustundir, vinnubragðasýningar og síðar bættust Bjórsetrið og Sögusetur íslenska hestsins við. Sundlaugin og tjaldsvæðið drógu að og unglingavinnan sá um að planta trjám og halda staðnum og nágrenni snyrtilegu. Íbúar og sveitungar voru stoltir af Hólum og þar var gott að búa. Hvað gerðist og af hverju? En hvað gerðist sem hefur orðið til þess að nú er móðurskipið lekt og dælur hafa ekki undan á sama tíma og Háskólinn á Hólum menntar fólk til starfa í mikilvægum atvinnugreinum og okkar helstu gjaldeyrisauðlindum, ferðamálum og einni vinsælustu grein búskapar, íþrótta- og áhugamála, hestamennsku, auk fiskalíffræði og fiskeldisfræða. Skólinn hefur á að skipa viðurkenndum vísindamönnum og kennurum. Eiga atvinnugreinarnar ekki að spyrja, hvað vantar ykkur til að gera gott nám enn betra? Þar á eru ugglaust allmargar skýringar, en ævinlega er skortur á fjármagni það sem fyrst er nefnt, ríkið þarf marga munna að metta. Hefði þetta samt verið látið drabbast svona stæði hugverk Rögnvaldar Ólafssonar og Guðjóns Samúelssonar í hjarta Reykjavíkur sem skólabygging Háskóla Íslands? Önnur skýring er þjóðfélagsbreytingar. Um leið og landsmönnum er safnað saman á einu horni landsins flytjast áherslur og áhugi til. Hjá fjölmörgum er fortíðin liðin og í raun einskis virði svo vitnað sé í „Hlöðuna“, bók Bergsveins Birgissonar. Og um leið eru þau sem vilja byggja á henni til framtíðar úthrópuð sem afturhaldsseggir. Búseta og vinnustaður fara ekki endilega saman lengur svo rótfesta, skyldur og samfélagsblöndun verður ekki til. Áhrif þessa sjást víða og er Bifröst þar dæmi. Margar nefndir hafa verið skipaðar og skilað álitum, dregið fram tækifæri og möguleika Hóla, samt hefur engin rekið negluna í til að minnka lekann. Háskólinn hefur fríað sig staðarhaldi og hið opinbera og sveitarfélagið Skagafjörður glíma um frárennslismál og snjómokstur, eignarhald og umráð. Við fyrirspurn sóknarnefndar Hóladómkirkju vegna leyfis fyrir salernishúsi vísaði hver á annan og enginn aðili með ákvörðunarvald fyrir staðinn fannst. Nú er fyrirhuguð stofnun háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands, undir kennitölu Háskóla Íslands í Reykjavík. Áform eru um uppbyggingu á lagareldishúsi á Sauðárkróki sem er nauðsynlegt fyrir framþróun deildarinnar. Bent hefur verið á mikil tækifæri með háskólasamstæðunni og kann svo að vera svo lengi sem sérstaða og sjálfstæði Háskólans á Hólum glatast ekki og stjórnun og starfsemi Hólaskóla og Hólastaðar verði áfram á Hólum. Þaðan hefur verið varist um aldir og ástæðulaust að flýja nú. Stjórnvöld standi sína plikt Ríki, sveitarfélag og Háskólinn á Hólum bera ábyrgð þegar kemur að málefnum Hólastaðar. Sveitarstjórnarkosningar eru framundan og ég skora á framboðin í héraðinu að taka málefni Hóla upp og sýna þessum merka stað þann sóma sem hann á skilið og stöndum leið vörð um það góða nám sem þar fer fram. Gerum okkur grein fyrir vægi þessa sögufræga staðar og þess að hafa í Skagafirði öflugar stofnanir á öllum skólastigum. Skagfirðingar gátu það 1882. Undirskriftasöfnun Já, hart er vegið að Hólastað. Sýnum að okkur sé ekki sama með því að skrifa undir yfirlýsingu þess efnis á eftirfarandi slóð. Þar eru settar fram kröfur til þeirra er málið varðar: https://island.is/undirskriftalistar/e78fbbfe-6b03-4427-9669-8c129bcde7dd Höfundur er Hólamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hamfarir Hildar – seinni hluti Haraldur Freyr Gíslason Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Menntamálin sem við forðumst að ræða Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ferilsskrá í stað fagurgala Vigdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börnin aftur í aftursætið? Heiðdís Geirsdóttir skrifar Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ást mín á íþróttum og silfurleysið í Peking Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Aukið aðgengi að áfengi? Lísbet Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þegar loforð duga ekki: Leikskólakerfið í Kópavogsbæ Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Leðurblökur í ráðhúsinu Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Um kennaranám Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Reynsla Íslands á erindi við umheiminn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar Skoðun Frelsi felst í fleiri valkostum Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk mennti sig? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bið, endalaus bið Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kársnesið okkar á betra skilið Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenskan að missa pláss í eigin landi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fleiri talmeinafræðinga og biðlistana burt Tinna Steindórsdóttir skrifar Skoðun Verkakonuskattur leikskólakerfisins Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Skoðun Félagslegt húsnæði og ójöfnuður á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Á hvaða ferðalagi er Sjálfstæðisflokkurinn? Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Eru börnin okkar örugg á götum bæjarins? Björn Sighvatsson skrifar Skoðun Menning gerir bæi að spennandi stöðum til að búa á Sunnefa Elfarsdóttir skrifar Skoðun Menntamálin sem við forðumst að ræða Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Tökum ekki skref til fortíðar Hrönn Svansdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir,Bjarni Gíslason,Ingibjörg Elín Halldórsdóttir,Sigríður Schram,Ragnar Schram,Birna Þórarinsdóttir,Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Jöfnuður mælist ekki í orðum – heldur í því hvernig við mætum fólki Steinunn Ósk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Skólarnir eru hjarta Hafnarfjarðar Ásdís Jóhannesdóttir,Lena Karen Sveinsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Enginn treystir kerfinu: Stefna meirihlutans í Reykjavík hefur brugðist Ari Edwald skrifar Sjá meira
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Fangelsi fyrir fjölskyldur - Ekki nota börn sem peð í pólitískri skák Alma Mjöll Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Árleg óvissa um NPA samninga er óboðleg Rúnar Björn Herrera Þorkelsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar
Skoðun Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Læsiskennsla á unglingastigi Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rannveig Oddsdóttir,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Skoðun Tökum ekki skref til fortíðar Hrönn Svansdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir,Bjarni Gíslason,Ingibjörg Elín Halldórsdóttir,Sigríður Schram,Ragnar Schram,Birna Þórarinsdóttir,Stella Samúelsdóttir skrifar
Skoðun Jöfnuður mælist ekki í orðum – heldur í því hvernig við mætum fólki Steinunn Ósk Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Skólarnir eru hjarta Hafnarfjarðar Ásdís Jóhannesdóttir,Lena Karen Sveinsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
Innantóm loforð um hjúkrunarheimili Gunnsteinn R. Ómarsson,Berglind Friðrikisdóttir,Pálmi Þór Ásbergsson,Bryndís Sigurðardóttir Skoðun