Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifa 13. apríl 2026 08:48 Maturinn sem börn fá í leik- og grunnskólum er eitt mikilvægasta lýðheilsumál sveitarfélaga. Mataræði á fyrstu árum hefur bein áhrif á heilaþroska, efnaskipti og heilsu síðar á lífsleiðinni. Regluleg neysla gjörunninnar fæðu mótar bragðskyn barna og venur þau við gervibragðefni og íblöndunarefni sem eru hönnuð til að auka bragð og hvetja til meiri neyslu. Þegar börn verja stórum hluta dagsins í skólum og leikskólum verða þær matarvenjur sem þar myndast mótandi fyrir heilsu þeirra til framtíðar. Rannsóknir sýna að næringarríkt, lítið unnið fæði styður bæði við andlega heilsu og einbeitingu. Á sama tíma og þekking á mikilvægi næringar hefur aldrei verið meiri, glíma um 7,5% barna á Íslandi við offitu eða um fimm þúsund börn. Þessi þróun kallar á skýr viðbrögð og sveitarfélög gegna þar lykilhlutverki. Í leik- og grunnskólum Akureyrar er vilji og metnaður til að bjóða upp á góðar og næringarríkar máltíðir og margt er vel gert. Samt er ljóst að gjörunnin matvæli eru enn hluti af matseðlum, oft dulbúin sem hollari kostir eða einfaldar lausnir, svo sem vorrúllur, kjötbúðingur og tilbúin grænmetisbuff. Einnig má nefna dæmi eins og tilbúið samlokubrauð í stað brauðs bakaðs á staðnum eða pakkasúpur í stað súpa eldaðra frá grunni. Það er svigrúm til að gera betur. L-listinn vill setja í forgang að matur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar byggi á ferskum, næringarríkum hráefnum, eftir því sem kostur er úr nærumhverfi Eyjafjarðar. Gjörunnin matvæli eiga ekki að vera reglulegur hluti af mataræði barna. Við þurfum markvisst að draga úr notkun þeirra og byggja upp matarumhverfi sem styður við heilsu, þroska og framtíð barnanna okkar. Höfundar eru Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir sem skipa 2. og 6. sæti L-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Maturinn sem börn fá í leik- og grunnskólum er eitt mikilvægasta lýðheilsumál sveitarfélaga. Mataræði á fyrstu árum hefur bein áhrif á heilaþroska, efnaskipti og heilsu síðar á lífsleiðinni. Regluleg neysla gjörunninnar fæðu mótar bragðskyn barna og venur þau við gervibragðefni og íblöndunarefni sem eru hönnuð til að auka bragð og hvetja til meiri neyslu. Þegar börn verja stórum hluta dagsins í skólum og leikskólum verða þær matarvenjur sem þar myndast mótandi fyrir heilsu þeirra til framtíðar. Rannsóknir sýna að næringarríkt, lítið unnið fæði styður bæði við andlega heilsu og einbeitingu. Á sama tíma og þekking á mikilvægi næringar hefur aldrei verið meiri, glíma um 7,5% barna á Íslandi við offitu eða um fimm þúsund börn. Þessi þróun kallar á skýr viðbrögð og sveitarfélög gegna þar lykilhlutverki. Í leik- og grunnskólum Akureyrar er vilji og metnaður til að bjóða upp á góðar og næringarríkar máltíðir og margt er vel gert. Samt er ljóst að gjörunnin matvæli eru enn hluti af matseðlum, oft dulbúin sem hollari kostir eða einfaldar lausnir, svo sem vorrúllur, kjötbúðingur og tilbúin grænmetisbuff. Einnig má nefna dæmi eins og tilbúið samlokubrauð í stað brauðs bakaðs á staðnum eða pakkasúpur í stað súpa eldaðra frá grunni. Það er svigrúm til að gera betur. L-listinn vill setja í forgang að matur í leik- og grunnskólum Akureyrarbæjar byggi á ferskum, næringarríkum hráefnum, eftir því sem kostur er úr nærumhverfi Eyjafjarðar. Gjörunnin matvæli eiga ekki að vera reglulegur hluti af mataræði barna. Við þurfum markvisst að draga úr notkun þeirra og byggja upp matarumhverfi sem styður við heilsu, þroska og framtíð barnanna okkar. Höfundar eru Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir og Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir sem skipa 2. og 6. sæti L-listans á Akureyri.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar