Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar 13. apríl 2026 10:15 Hafnarfjörður stendur frammi fyrir einfaldri staðreynd, plássið er að klárast. Þetta er ekki tilfinning þetta er staða sem er farin að birtast í raun. Uppbyggingarsvæði eru að klárast og svigrúmið til frekari þróunar innan bæjarins er takmarkað. Undanfarin ár hefur verið lögð rík áhersla á þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Sú stefna hefur verið skýr og hefur skilað árangri. En nú er ljóst að hún dugar ekki ein og sér. En eins og með alla stefnumótun hefur þétting sín takmörk. Hér í Hafnarfirði erum við farin að sjá þessi mörk birtast í raun. Uppbyggingarsvæði eru takmörkuð og í mörgum tilvikum að klárast. Sveitarfélagið er landfræðilega afmarkað og stór svæði bundin af náttúru, verndarsjónarmiðum og starfsemi sem ekki er raunhæft að færa til. Þegar við Hafnfirðingar nálgumst þessi mörk þarf umræðan að þróast áfram. Þá dugar ekki lengur að tala eingöngu um þéttingu sem lausn. Þá þarf að horfa á heildarskipulag svæðisins og spyrja stærri spurninga. Eru vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins að halda aftur af uppbyggingu? Það er spurning sem við verðum að svara af hreinskilni. Í dag eru þessi mörk ekki aðeins stefnumarkandi heldur í raun mjög stíf. Breytingar á þeim krefjast samkomulags allra sveitarfélaga á svæðinu, sem þýðir að hvert þeirra hefur í reynd neitunarvald. Það getur tafið eða stöðvað nauðsynlega uppbyggingu, jafnvel þegar skýr þörf er til staðar. Þetta skapar ákveðna spennu í skipulaginu. Annars vegar er markmið um að halda byggð innan ákveðinna marka. Hins vegar er raunveruleg þörf fyrir húsnæði og uppbyggingu sem hverfur ekki. Þessi þörf er drifin áfram af fólksfjölgun sem hefur ítrekað reynst vanmetin í forsendum vaxtarmarka. Við þurfum að taka næsta skref. Þessi staða kallar á raunhæft svigrúm til uppbyggingar. Fyrir Hafnarfjörð þýðir það einfaldlega að tryggja ný svæði til framtíðar. Það er pólitísk ákvörðun. Við í Framsókn viljum endurskoða svæðisskipulagið og vinna markvisst að breytingum sem taka mið af þessari stöðu með sveigjanlegra skipulagi sem horfir til heildarinnar og tryggir Hafnfirðingum raunhæft svigrúm til uppbyggingar til framtíðar. Í aðdraganda kosninga er mikilvægt að ræða þetta af hreinskilni. Ekki aðeins hvernig við þéttum heldur líka hvar við getum byggt. Því þetta snýst um Hafnarfjörð og hvernig við ætlum að byggja hann til framtíðar. Höfundur er í 6. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar